Enski boltinn

Neville segir Liverpool græða á því að vera búið með leik meira en City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Virgil van Dijk í leiknum á móti Fulham í gær.
Virgil van Dijk í leiknum á móti Fulham í gær. Getty/Marc Atkins
Gary Neville þekkir það vel að verða enskur meistari frá sigursælum tíma sínum með Manchester United og hann kom með innlegg í umræðuna um titilbaráttu Manchester City og Liverpool í nýjasta pistli sínum fyrir Sky Sports.

Liverpool vann 2-1 sigur á Fulham í gær og náði um leið tveggja stiga forskoti á Manchester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester City var að spila í bikarnum um helgina og deildarleik liðsins var því frestað.

Liverpool verður á toppnum næstu vikurnar þar sem ekkert er spilað í ensku úrvalsdeildinni vegna landsleikjahlés. Manchester City á aftur móti þennan eina leik inni á Liverpool og getur náð toppsætinu aftur með sigri í honum.





„Sú staðreynd að Liverpool sé búið að spila einum leik meira en Manchester City er gott fyrir titilvonir liðsins,“ skrifaði Gary Neville.

Manchester City vinnur ekki upp leikjamuninn fyrr en 24. apríl og það þarf líka að fresta öðrum leik hjá Manchester City vegna undanúrslitanna í enska bikarnum.

„Liverpool gerir sér grein fyrir því að þetta var stór stund. Það munu koma upp tilfelli þar sem Liverpool tapar stigum á þessum lokakafla tímabilsins og sömuleiðis tel ég að Manchester City muni tapa stigum. Liverpool mátti bara ekki tapa stigum í þessum leik á móti Fulham,“ skrifaði Gary Neville.

„Leikurinn sem Manchester City á inni á Liverpool er á útivelli á móti Manchester United, á Old Trafford. Hér er tækifæri fyrir Liverpool til að vera á toppnum næstu vikurnar því City á þennan leik inni til 24. apríl og svo bætast við flækjur vegna undanúrslitanna í bikarnum. Ég trúi því að þetta sé gott fyrir Liverpool,“ skrifaði Neville.

„Liverpool varð bara að vinna þennan leik. Þetta var ekki það besta sem við höfum séð til liðsins en þeir voru að spila þennan leik í lok erfiðar viku sem hafði örugglega tekið mikið frá liðinu,“ skrifaði Neville. Liverpool hafði áður unnið Burnley og slegið Bayern München út úr Meistaradeildinni.

„Fólki mun örugglega benda á það, ef þeir vinna hvorki deildina eða Meistaradeildina, að þetta sé enn eitt titlalausa árið. En liðið hefur orðið betra og betra á hverju ári. Þeir tóku síðan risastökk á þessu tímabili eftir kaupin á Virgil van Dijk og Alisson, skrifaði Neville.

„Þeir gerðu báðir mistök í Fulham markinu en ég man ekki eftir að það hafi gerst áður. Þeir hafa verið frábærir allt tímabilið. Liverpool er alvöru lið núna. Það vill enginn mæta þeim. Þeir eru góðir varnarlega, með vinnualka inn á miðjunni og þrjá frammi sem geta skaðað þig,“ skrifaði Neville.

Það má finna allan pistil hans með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×