Fótbolti

Suarez frá í tvær vikur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Suarez meiddist í gærkvöld
Suarez meiddist í gærkvöld
Luis Suarez verður frá í rúmlega tvær vikur vegna ökklameiðsla sem hann hlaut í sigri Barcelona í gær. Hann ætti þó að ná leikjunum við Manchester United.

Suarez var skipt út af undir lok leiks Barcelona og Real Betis vegna meiðsla á ökkla. Fyrr í leiknum hafði hann skorað sitt 18. mark tímabilsins fyrir Barcelona.

Eftir læknisskoðun er gert ráð fyrir því að framherjinn verði frá í 10-15 daga.

Barcelona mætir Manchester Untied í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu og er fyrri leikurinn 10. apríl. Suarez ætti að vera orðinn heill á ný fyrir þann leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×