Innlent

Halda til móts við konu sem varð fyrir grjóthruni á Esjunni

Andri Eysteinsson og Jóhann K. Jóhannsson skrifa
Frá Esjurótum
Frá Esjurótum Vísir/Jói K.
Björgunarsveitir halda nú áleiðis upp Esjuhlíðar til móts við konu sem varð fyrir grjóthruni nærri Steini. Tilkynning barst um klukkan 19:30 og héldu viðbragðsaðilar af stað. Meiðsli konunnar virðast minni en talið er í fyrstu og fikrar hún sig nú niður fjallið með stuðningi gönguhóps sem var meðferðis.

Auk björgunarsveitarfólks er lögregla , sjúkrabíll og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við Esjurætur og fara viðbragðsaðilar upp fjallshlíðarnar á hjólum og bílum samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu.

Björgunarsveitarmenn héldu til móts við hina slösuðu.Vísir/Jói K.
Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg segir þrjá hafa orðið fyrir grjóti.

„Það var tilkynnt um að það hefði fallið grjótskriða og einhverjir þrír lent fyrir grjóti og einn aðilinn væri ekki gönguhæfur og hefði eitthvað hruflast og væri laskaður á fæti. Í framhaldinu höfðu þau samband aftur og eru að labba niður mjög hægt og rólega með þennan laskaða göngumann. Við erum búin að vera í samskiptum við þau. Þau eru bara hægt og rólega á leiðinni niður og við erum búin að senda upp tvö fjórhjól og göngumenn. Svo eru tveir sjúkraflutningamenn líka,“ sagði Jónas í samtali við fréttamann á staðnum.

Jónas sagði aðstæður ekki slæmar þrátt fyrir rigningu og þoku. „Bara íslenskt kvöldveður“

Auk Björgunarsveitar voru lögreglubíll, sjúkrabíll og slökkviliðsbíll kallaðir á vettvang.Vísir/Jói K.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×