Viðskipti innlent

Ísland og Noregur ná samningi við Bretland

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ísland og Noregur hafa náð að landa samningi við Bretland sem tryggir óbreytt fyrirkomulag tolla og viðskipta og réttindi borgaranna fari það svo að Bretland yfirgefi Evrópusambandið án samnings.
Ísland og Noregur hafa náð að landa samningi við Bretland sem tryggir óbreytt fyrirkomulag tolla og viðskipta og réttindi borgaranna fari það svo að Bretland yfirgefi Evrópusambandið án samnings.
Ísland, Noregur og Bretland hafa lokið samningaviðræðum um bráðabirgða fríverslunarsamning vegna vöruviðskipta ef Bretland gengur úr ESB án útgöngusamnings. Samningurinn sem löndin komu sér saman um í gærkvöldi tryggir óbreytt fyrirkomulag tolla, viðskipta og réttindi borgara í öllum grundvallaratriðum.

Bretland er mikilvægur útflutningsmarkaður fyrir íslensk fyrirtæki en samningurinn tryggir áframhaldandi útflutning um 55.000 tonna af sjávarafurðum til Bretlands á sömu tollkjörum og gilda í dag.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir í samtali við fréttastofu að samningurinn hafi legið fyrir í einhvern tíma hvað Ísland varðar en bætir við að hann hafi verið að bíða eftir að fulltrúar Noregs og Bretlands næðu að hnýta lausa enda. Það hafi náðst í kvöld.

„Réttindi borgaranna eru tryggð bæði Íslendingar í Bretlandi og Bretar á Íslandi og sömuleiðis loftferðirnar, sem er náttúrulega gríðarlega mikilvægt, og núna vöruviðskiptin þannig að við erum búin að hnýta alla þá enda sem við mögulega getum,“ segir Guðlaugur.



Guðlaugur segist hafa verið að undirbúa þjóðina fyrir mismunandi sviðsmyndir sem fylgir óvissunni sem hefur verið uppi í tengslum við Brexit. Hann segir að það sé þó nokkuð síðan Ísland kláraði samninga við Breta ef þeir færu úr ESB með samning en bætir við að í kvöld hefðu náðst samningar þess efnis að tryggja óbreytt fyrirkomulag fari það svo að Bretar fari úr ESB án samnings. Guðlaugur kemur til með að skrifa undir samninginn á næstu dögum.

„Hvort sem þeir fara út með eða án samnings þá erum við búin að tryggja stöðu okkar eins mikið og hægt er þó við ráðum auðvitað ekki hvað kemur upp á milli ESB og Bretlands. Síðan munum við gera framtíðarsamning við Breta því við viljum styrkja enn frekar samskipti þjóðanna og það er vilji beggja aðila.“

Guðlaugur segist vera afar ánægður með samstarfið við Breta og er það til efs að það hafi nokkurn tíman verið jafn gott og nú.

Nú sé Ísland búið að tryggja réttindi sín til skamms tíma en næsta verkefni er að ganga frá framtíðarsamningi við Breta.

„Það er verkefni sem við hlökkum til að takast á við. Samstarfið er búið að vera mjög gott. Við erum búin að ganga frá því sem þarf að gera, sama hvaða sviðsmynd kemur upp og það er alveg skýr vilji frá báðum aðilum til að styrkja samstarf þjóðanna enn frekar með framtíðarsamningi,“ segir Guðlaugur.


Tengdar fréttir

Bannar atkvæðagreiðslu um óbreyttan Brexit-samning

Forseti fulltrúadeildar breska þingsins, John Bercow, hefur úrskurðað að ekki verði greidd atkvæði um Brexit-samninginn að nýju fyrr en að gerðar hafa verið breytingar á efni hans.

Þingið vill að útgöngu úr ESB verði frestað

Breska þingið samþykkti tillögu um að fresta útgöngu úr Evrópusambandinu til að minnsta kosti 30. júní næstkomandi til að freista þess að koma sér saman um samning. Dagurinn var almennt góður fyrir Theresu May forsætisráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×