Innlent

Dagbók lögreglu: Íbúar upplifa óöryggi vegna erlendra útigangsmanna

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglunni barst einnig tilkynning um líkamsárás í Kópavogi á sjötta tímanum í gær, þar sem maður hafði verið skorinn.
Lögreglunni barst einnig tilkynning um líkamsárás í Kópavogi á sjötta tímanum í gær, þar sem maður hafði verið skorinn. Vísir/Vilhelm
Íbúar í Fossvogshverfi segjast upplifa óöryggi vegna erlendra útigangsmanna sem séu á ferli í hverfinu. Íbúarnir segja þá sitja ölvaða á gönguleiðum og þeim fylgi sóðaskapur. Þeir segjast varla þora að hafa börn sín ein utandyra.

Útigangsmennirnir eru sagðir halda til í skógi í hverfinu og hafa íbúar sakað þá um þjófnað. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Lögreglunni barst einnig tilkynning um líkamsárás í Kópavogi á sjötta tímanum í gær, þar sem maður hafði verið skorinn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Slysadeild til aðhlynningar en vildi enga aðstoð frá lögreglu.

Tilkynning barst um þjófnað í íþróttahúsi í Reykjavík í gær þar sem dýrum úlpum, síma, greiðslukorti og fleira var stolið. Málið er í rannsókn en í dagbók lögreglu segir að mögulega sé vitað hverjir hafi verið að verki.

Umferðaróhapp varð á Bústaðavegi í gærkvöldi þar sem tveir bílar lentu saman á gatnamótum. Talið er að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á rauðu ljósi. Engin slys urðu á fólki en ökumaður annars bílsins var þó fluttur til aðhlynningar vegna brjóstverkjar.

Næturvörður hótels þurfti að brjóta upp hurð salernis í nótt þegar gestur sem hafði farið þar inn svaraði ekki félögum hans. Í ljós kom að hann var hafði sofnað ölvunarsvefni og reyndist í góðu lagi.

Þá reyndist ökumaður sem stöðvaður var í gær vera undir áhrifum fíkniefna. Hann er einnig grunaður um vörslu og sölu fíkniefna og farþegi í bílnum er grunaður um vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum. Þar að auki var bíllinn ótryggður og voru númerin tekin af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×