Viðskipti innlent

Tímabært að leyfa sölu bjórs beint frá brugghúsum

Sighvatur Jónsson skrifar
Íslensk brugghús reka mörg hver veitingasölu en viðskiptavinir mega ekki kaupa bjór af brugghúsunum á flöskum og taka með sér heim.
Íslensk brugghús reka mörg hver veitingasölu en viðskiptavinir mega ekki kaupa bjór af brugghúsunum á flöskum og taka með sér heim.
Stjórnarformaður í Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa segir tímabært að sala bjórs verði leyfð beint frá framleiðendum, líkt og tíðkist víða erlendis. Vel yfir hundrað tegundir af íslenskum bjór eru framleiddar í brugghúsum landsins.

Í dag eru 30 ár liðin frá því að sala bjórs var leyfð aftur á Íslandi eftir margra áratuga bann. Árið 1915 tók gildi bann við áfengisneyslu á Íslandi. Bjór var ekki leyfður aftur fyrr en 74 árum síðar, 1. mars 1989.

Fyrsta daginn gátu viðskiptavinir vínbúða í Reykjavík valið á milli fimm tegunda bjórs. Nú 30 árum síðar framleiðir hver íslenskur framleiðanda hið minnsta jafn margar tegundir og í boði voru þá.

Yfir hundrað íslenskar bjórtegundir

24 framleiðendur sem framleiða áfengi frá grunni, aðallega bjór, eru í Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa. Samtökin voru stofnuð fyrir um ári. Sigurður Pétur Snorrason, formaður stjórnar samtakanna, ætlar að fagna bjórdeginum með félögum í samtökunum á bjórhátíð á Árskógssandi í kvöld.

Sigurður segir að brugghúsin skapi atvinnu í héraði og laði að sér bæði starfsmenn og ferðamenn.

Aðspurður um fjölda íslenskra bjórtegunda segir hann að hvert brugghús framleiði um fimm til tíu tegundir, íslenskar bjórtegundir séu því vel yfir hundrað talsins.

Bjórsala beint frá býli

Ferðamennska og kynning á framleiðslu bjórs er hluti reksturs margra brugghúsa. Mörg þeirra hafa opnað eigin veitingasölu og selja bjór á staðnum. Sigurður Pétur Snorrason segir tímabært að leyfa sölu bjórs beint úr brugghúsum þannig að viðskiptavinir geti tekið hann með sér heim.

„Í Bandaríkjunum geturðu farið inn í næsta brugghús með stóra flösku og fengið hana fyllta og farið með hana heim fulla af bjór. Slíkt er ekki hægt hér út af lögum. En ef þetta frumvarp sem er búið að liggja fyrir í mörg ár verður samþykkt þá heimilar það stofnun sérverslana með áfengi. En við viljum líka fá að sjá að brugghúsið þyrfti ekki að taka það aukaskref heldur fengi bara leyfi til að selja beint til þeirra sem koma að heimsækja brugghúsið,“ segir Sigurður Pétur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×