Viðskipti erlent

Versnandi samband Kanada og Kína

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Deila Kanadamanna og Kínverja snýst að mestu um Huawei.
Deila Kanadamanna og Kínverja snýst að mestu um Huawei. Nordicphotos/Getty
Yfirvöld í Kína hafa ákært Kanadamennina Michael Kovrig, fyrrverandi erindreka, og Michael Spavor athafnamann fyrir njósnir. Ákærurnar eru hluti af versnandi samskiptum ríkjanna tveggja en Kovrig og Spavor voru handteknir í desember eftir að Kanadamenn handtóku Meng Wanzhou, fjármálastjóra kínverska tæknirisans Huawei.

Kovrig er nánar tiltekið sakaður um „njósnir og að stela ríkisleyndarmálum fyrir erlenda aðila“ og Spavor á að hafa „gefið Kovrig upplýsingar“.

Einnig dró til tíðinda á hinni hlið málsins í gær. Greint var frá því að Meng hefði á föstudag höfðað einkamál gegn kanadísku ríkisstjórninni, landamæragæslu og lögreglu fyrir „alvarleg brot“ á grundvallarmannréttindum sínum. Hún sakar yfirvöld um að hafa leitað á sér og yfirheyrt undir fölsku yfirskini.

Meng var handtekin að beiðni Bandaríkjamanna en þar sætir hún, líkt og fyrirtækið, ákæru fyrir meðal annars bankasvindl. Hún er enn í Kanada, var látin laus gegn tryggingu, en mætir fyrir dóm á morgun þar sem til stendur að kveða upp úrskurð um hvort Kanadamenn megi framselja hana suður til Bandaríkjanna. Ef svo er mun dómsmálaráðherra Kanada taka endanlega ákvörðun um hvort hún verður framseld.

Kínverjar hafa lagst gegn framsalinu. Samkvæmt BBC hafa þeir sagt að um sé að ræða „misnotkun á tvíhliða framsalssamningi“ og tjáð Kanadamönnum alvarlegar áhyggjur sínar af stöðunni. Einnig hafa þeir líkt ásökununum gegn Huawei við nornaveiðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×