Harmageddon

Vill að forystan axli ábyrgð og segi af sér

Frosti Logason skrifar
„Þetta var það sem við lögðum upp með og niðurstaðan er náttúrulega eitthvað sem við erum sátt við,“ segir Heiðveig María Einarsdóttir en hún hafði fullnaðarsigur gegn Sjómannafélagi Íslands þegar brottrekst­ur hennar var dæmdur ólöglegur í félagsdómi í síðustu viku. Dómurinn viðurkenndi enn fremur að ákvæði laga fé­lags­ins um þriggja ára greiðslu­skyldu fé­laga til að geta öðlast kjörgengi í fé­lag­inu fæli í sér brot gegn ákvæði laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deil­ur. 

„Persónulega finnst mér að þeir ættu að segja af sér og boða til kosninga eins fljótt og hægt er, þó ekki væri nema bara til að endurnýja umboðið. Mér finnst það vera mikilvægt atriði, hvort sem ég ætli að bjóða mig fram eða ekki, þá þarf nú kannski bara að núllstilla þetta eitthvað,“ segir Heiðveig. 

Aðspurð segir Heiðveig það vissulega vekja furðu að forysta félagsins hafi enn þá ekkert gefið út um málið en dómur félagsdóms féll á þriðjudag í síðustu viku. „Í öllum eðlilegum stéttarfélögum hefðu menn verið búnir að undirbúa sig undir allar mögulegar niðurstöður og hvernig bregðast ætti við þeim. Dómurinn er mjög afgerandi og fordæmisgefandi út frá þessari þriggja ára reglu.“ 

Sjómannafélaginu var gert að greiða 1.500.000 krón­ur í sekt til rík­is­sjóðs og 750.000 krón­ur til Heiðveig­ar fyr­ir máls­kostnaði. Heiðveig bendir á að hin háa upphæð sem þar um ræðir undirstriki hversu alvarlega félagið er talið hafa brotið gegn lýðræðislegum réttindum. 

„Við vorum að leita af sektum og ég man eftir 300 þúsund króna sekt síðast fyrir löngu, löngu síðan. Þannig að þetta er ofboðslega há sekt í samhengi félagsdóms.“ 

Heiðveg telur rétt að þeir núverandi stjórnarmeðlimir sem tóku þátt í þeim gjörningi að vísa henni úr félaginu ættu með réttu að axla ábyrgð á gjörðum sínum. „Vegna þess að það má ekki gleyma því líka að þetta er gríðarlegur kostnaður fyrir félagið að hafa þurft að taka þátt í þessu. Þeir þurfa líka að greiða málskostnað, minn kostnaður var um 2,2 milljónir og það er örugglega svipað hinum megin ef ekki hærra.“ 

Hlustaðu á allt viðtalið við Heiðveigu hér að ofan








×