Hazard bjargaði stigi fyrir Chelsea

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jiménez skorar fyrir Wolves.
Jiménez skorar fyrir Wolves. vísir/getty
Eden Hazard tryggði Chelsea stig gegn Wolves þegar hann jafnaði metin í 1-1 á 92. mínútu í leik liðanna á Stamford Bridge í dag.

Wolves náði forystunni á 56. mínútu, þvert gegn gangi leiksins, þegar Raúl Jiménez skoraði eftir vel útfærða skyndisókn og sendingu frá Diogo Jota. Þetta var eina skot Úlfanna í leiknum.

Chelsea sótti stíft það sem eftir lifði leiks og pressan bar loks árangur á 92. mínútu þegar Hazard skoraði sitt þrettánda deildarmark á tímabilinu. Lokatölur 1-1.

Chelsea er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 57 stig, jafn mörg og Arsenal en lakari markatölu.

Wolves situr í 7. sætinu með 44 stig. Úlfarnir fengu fjögur stig af sex mögulegum í deildarleikjum tveimur gegn Chelsea á tímabilinu.



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira