Lífið

Vaxmynd Diddy afhöfðuð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alvöru Diddy hér til vinstri og vaxútgáfan af rapparanum má sjá til hægri.
Alvöru Diddy hér til vinstri og vaxútgáfan af rapparanum má sjá til hægri.
Vaxmynd af Sean Diddy Combs, sem margir þekkja undir nafninu Puff Daddy, var afhöfðuð á vaxmyndarsafninu Madame Tussauds í New York en atvikið átti sér stað á laugardagskvölið. Fréttastofa AP greinir frá.

Lögregluyfirvöld segja að óprúttinn aðili hafi gengið inn á safnið um níuleytið á laugardagskvöld og sparkað styttuna niður með þeim afleiðingum að höfuð Combs rifnaði af styttunni.

Forsvarsmenn Madame Tussauds safnsins í New York hafa gefið út að styttan verði lagfærð á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×