Tónlist

Auður með flestar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Sunna Gunnlaugsdóttir, Víkingur Heiðar, Auður og Gyða Valtýsdóttir eru áberandi í tilnefningum þetta árið.
Sunna Gunnlaugsdóttir, Víkingur Heiðar, Auður og Gyða Valtýsdóttir eru áberandi í tilnefningum þetta árið. Vísir
Uppfært 13. mars: Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í kvöld, 13. mars. Hér að neðan má sjá tilnefningarnar í heild sinni.

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2018 voru tilkynntar í beinni útsendingu 20. febrúar.

Í ár verða veitt 37 verðlaun auk Heiðursverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna. Flestar tilnefningar hljóta Auður, Valdimar, GDRN, Jónas Sig, Víkingur Heiðar, Sunna Gunnlaugs, Umbra, Anna Þorvaldsdóttir, JóiPé & Króli, Herra Hnetusmjör og Gyða Valtýsdóttir.

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í beinni

Við verðum í beinni útsendingu frá Bryggjunni brugghúsi þar sem tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna verða kynnt. Komið með okkur!

Posted by Íslensku tónlistarverðlaunin on Wednesday, February 20, 2019
Auður hlýtur alls átta tilnefningar fyrir plötuna Afsakanir. Hljómsveitin Valdimar hlýtur sjö tilnefningar í flokki rokktónlistar. Fast þar á hæla kemur tónlistarkonan Guðrún Ýr eða GDRN með sex tilnefningar.

Jónas Sig hlýtur fimm tilnefningar í flokki popptónlistar fyrir plötu sína Milda hjartað. Í flokknum rapp og hip hop eru JóiPé X Króli ásamt Herra Hnetusmjör atkvæðamestir með þrjár tilnefningar. Í opnum flokki hlýtur hljómsveitin Umbra þrjár tilnefningar en það gerir einnig Gyða Valtýsdóttir sem á plötur bæði í opnum flokki og í kvikmyndatónlist. Í flokki djass og blústónlistar er Sunna Gunnlaugs með fjórar tilnefningar en svo eiga þeir Scott McLemore, Karl Olgeirsson og Agnar Már Magnússon þrjár hver.

Árið í sígildri og samtímatónlist var geysisterkt og fjölbreytt að mati dómnefndar. Víkingur Heiðar Ólafsson hlýtur í ár fjórar tilnefningar og Anna Þorvaldsdóttir þrjár.

Daníel Bjarnason, Nýdönsk og Mammút voru með þeim sigursælustu á verðlaununum í fyrra.

Hér fyrir neðan má sjá þá sem hljóta tilnefningar í hverjum flokki fyrir sig. Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 13. mars næstkomandi og verður kynnir kvöldsins Saga Garðarsdóttir.

GDRN, Auður, Valdimar, Jónas Sig, Herra Hnetusmjör og JóiPé X Króli.
Í yfirflokknum Rokk, popp, raftónlist, rapp og hip hop eru eftirfarandi verkefni tilnefnd:

Plata ársins – Rapp og hip hop

JóiPé & Króli - Afsakið hlé

Elli Grill - Pottþétt Elli Grill

Birnir - Matador

Herra Hnetusmjör - KBE kynnir: Hetjan úr hverfinu

Cyber - Bizness



Plata ársins – Rokk

Valdimar - Sitt sýnist hverjum

Dr. Spock - Leður

Benny Crespo’s gang - Minor Mistakes

Vintage Caravan – Gateways

Hórmónar - Nananabúbú



Plata ársins – Popp

Prins Póló - Þriðja kryddið

John Grant - Love Is Magic

Jónas Sig - Milda Hjartað

Svavar Knútur - Ahoy! Side A

GDRN- Hvað ef



Plata ársins – Raftónlist

Auður - Afsakanir

aYia-aYia

Kælan Mikla - Nótt eftir nótt

Andi - Allt í Einu

Hermigervill - II



Söngvari ársins

Auður

Valdimar Guðmundsson

John Grant

Króli (Kristinn Óli Haraldsson)

Svavar Knútur



Söngkona ársins

GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)

Margrét Rán

JFDR (Jófríður Ákadóttir)

Brynhildur Karlsdóttir

Bríet



Lag ársins – Rokk

Benny Crespo’s Gang - Another Little Storm

Valdimar - Stimpla mig út

Une Misere - Wounds

Hórmónar - Kynsvelt

Hatari – Spillingardans



Lag ársins – Popp

Auður - Heimskur og breyskur

Prins Póló - Líf ertu að grínast

Vök - Autopilot

GDRN ft. Floni & ra:tio - Lætur mig

Bríet - In Too Deep



Lag ársins – Rapp og hip hop

JóiPé & Króli - Í átt að tunglinu

Logi Pedro - Dúfan mín

Birnir - Út í geim

Herra Hnetusmjör & Ingi Bauer - Upp til hópa

Cyber - Hold



Textahöfundur ársins

Auður – (Auðunn Lúthersson)

Jónas Sig

GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)

Svavar Pétur - Prins Póló

Valdimar



Lagahöfundur ársins

Auður - Auðunn Lúthersson

GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir)

Svavar Pétur Eysteinsson

Jónas Sig

Valdimar



Tónlistarviðburður ársins

Aldrei fór ég suður

Fiskidagstónleikarnir á Dalvík

Háskar

Valdimar - Útgáfutónleikar

John Grant - Love is Magic



Tónlistarflytjandi ársins

Hatari

Auður – (Auðunn Lúthersson)

Vintage Caravan

Hórmónar

JóiPé & Króli



Bjartasta vonin

Bagdad Brothers

Bríet

ClubDub

Matthildur

Une Misère

Bjartasta vonin er veitt í samstarfi við Rás 2 og er hægt að taka þátt í kosningunni hér.

Umbra og Gyða Valtýsdóttir.
Í yfirflokknum Opinn flokkur eru eftirfarandi verkefni tilnefnd:

Plata ársins – Þjóðlagatónlist

Ylja - Dætur

Ásgeir Ásgeirsson - Travelling through cultures

Umbra - Sólhvörf

Umbra - Úr myrkrinu

Teitur Magnússon - Orna



Plata ársins – Opinn flokkur

Sunna Friðjóns - Enclose

Maximús Músíkús og Sinfóníuhljómsveit Íslands - Maximús fer á fjöll

Gyða Valtýsdóttir - Evolution

Hekla - Á

Kjass - Rætur



Plata ársins – Leikhús- og kvikmyndatónlist

Atli Örvarsson - Lói þú flýgur aldrei einn

Davíð Þór Jónsson - Kona fer í stríð

Gyða Valtýsdóttir - Mihkel

Veigar Margeirsson - Efi, dæmisaga

Jóhann Jóhannsson – Mandy



Lag ársins/Tónverk ársins í Opnum flokki

Snorri Hallgrímsson - I know you´ll follow

Arnór Dan - Stone by stone

Gyða Valtýsdóttir - Moonchild

Veigar Margeirsson - Efi

JFDR - Gravity



Plötuumslag ársins - Þvert á flokka

The Vintage Caravan - Gateways

Jóel Pálsson - Dagar koma

Jónas Sig - Milda hjartað

Skálmöld - Sorgir

Umbra - Sólhvörf



Upptökustjórn ársins - Þvert á flokka

Jónas Sig. - Milda hjartað - Ómar Guðjónsson

Ylja - Dætur - Guðmundur Óskar Guðmundsson

Víkingur Heiðar Ólafsson - Johann Sebastian Bach - Christopher Tarnow

Auður - Afsakanir - Auðunn Lúthersson, Addi 800, Glenn Schick

John Grant - Love Is Magic - : Ben Edwards

Valdimar - Sitt sýnist hverjum - Pétur Ben (upptökustjóri), Magnús Öder (hljóðblöndun), Alan Douches (hljómjöfnun)

Agnar Már, Scott McLemore, Sunna Gunnlaugs og Karl Olgeirsson.
Í yfirflokknum Djass og blús eru eftirfarandi verkefni tilnefnd:

Plata ársins

Karl Olgeirsson - Mitt bláa hjarta

DÓH Tríó - DÓH

Sunna Gunnlaugs - Ancestry

Agnar Már - Hending

Scott McLemore - The Multiverse



Tónverk ársins

Mitt bláa hjarta - Tónskáld: Karl Olgeirsson  / Textahöfundur: Karl Olgeirsson

Norðurljós - Tónskáld: Sigmar Þór Matthíasson

Ancestry - Tónskáld: Sunna Gunnlaugs

To catch a glimpse - Tónskáld: Scott McLemore

Bugða - Tónskáld: Agnar Már Magnússon



Lagahöfundur ársins

Karl Olgeirsson

Sunna Gunnlaugs

Scott McLemore

Agnar Már Magnússon

Sigmar Þór Matthíasson



Tónlistarflytjandi ársins (einstaklingar)

Kjartan Valdimarsson

Sunna Gunnlaugs

Magnús Trygvason Eliassen

Jóel Pálsson

Daníel Helgason



Tónlistarflytjandi ársins (hópar)

Stórsveit Reykjavíkur

DÓH - Tríó

Ingi Bjarni Trio



Tónlistarviðburður ársins

Blúshátíð í Reykjavík

Tónleikaraðir Jazzklúbbsins Múlans

Tónleikaröð Stórsveitar Reykjavíkur

Jazzhátíð Reykjavíkur

Freyjujazz

Bjartasta von í Djass og blús verður kynnt á hátíðinni þann 13. mars næstkomandi.

Anna Þorvaldsdóttir og Víkingur Heiðar.
Í yfirflokknum Sígild- og samtímatónlist eru eftirfarandi verkefni tilnefnd:

Plata ársins

Anna Þorvaldsdóttir – AEQUA

Jóhann Jóhannsson - Englabörn & Variations

Þráinn Hjálmarsson - Influence of buildings on musical tone

Víkingur Heiðar Ólafsson - Johann Sebastian Bach

Söngvar Jórunnar Viðar - Jórunn Viðar – Söngvar

Nordic Affect - He(a)r



Tónverk ársins

Farvegur - Þuríður Jónsdóttir

From My Green Karlstad - Finnur Karlsson

Loom - María Huld Markan Sigfúsdóttir

METACOSMOS - Anna Þorvalds

Silfurfljót - Áskell Másson

Spectra - Anna Þorvalds

Split thee, Soul, to Splendid Bits (attn.: no eternal life/light this time around) - Bára Gísladóttir



Söngvari ársins

Benedikt Kristjánsson

Eyjólfur Eyjólfsson

Oddur Arnþór Jónsson



Söngkona ársins

Hallveig Rúnarsdóttir

Hanna Dóra Sturludóttir

Valgerður Guðnadóttir



Tónlistarflytjandi ársins (einstaklingar)

Sæunn Þorsteinsdóttir

Una Sveinbjarnardóttir

Víkingur Heiðar Ólafsson



Tónlistarflytjandi ársins (hópar)

Barokkbandið Brák

Kammersveitin Elja

Schola Cantorum

Nordic Affect

Strokkvartettinn Siggi



Tónlistarviðburður ársins

Budapest Festival Orchestra og Iván Fischer - Tónleikar í Eldborg, Hörpu

#bergmálsklefinn

Brothers

Víkingur Heiðar Ólafsson - útgáfutónleikar, Bach

Barokkbandið Brák - Spíralar Versala

Edda II: Líf guðanna – 23. mars / SÍ og Schola Cantorum

Íslendingasögur – Sinfónísk sagnaskemmtun - hátíðarviðburður fullveldisafmælisins 1. desember



Tónlistarviðburðir ársins

Myrkir músíkdagar

Óperudagar í Reykjavík

Reykholtshátíð

Bjartasta von í sígildri og samtímatónlist verður kynnt 13. mars þegar tónlistarverðlaunin verða afhent.

Tónlistarmyndband ársins

Tónlistarmyndband ársins er veitt í samstarfi við Albumm og er hægt að taka þátt í kosningunni hér.



Klippa: AUÐUR - AFSAKANIR


Auður - Afsakanir - Leikstjóri: Erlendur Sveinsson

Umsögn dómnefndar: „Myndbandið/myndin heltekur áhorfandann frá fyrstu töku en verkið er bæði skemmtilegt og hlaðið ólýsanlegri orku. Auður er mikill snillingur og listamaður fram í fingurgóma. Heilsteypt verk sem fær á köflum hárin til að rísa á hnakkanum.“



Klippa: Between Mountains - Into the Dark


Between Mountains - Into the Dark - Leikstjóri: Haukur Björgvinsson

„Ótrúlega vel skotið, klippt og lýst myndband og svo er sagan einstaklega frábær. Hér er allt hugsað til hins ýtrasta og nostrað er við hvert smáatriði.“



Klippa: GDRN - Lætur mig ft. Floni & ra:tio


GDRN - Lætur mig ft. Floni & ra:tio - Leikstjóri: Ágúst Elí

„Myndbandið er eins og draumur og maður sogast inn í sýndarheim sem erfitt er að segja skilið við. Svart vatn, þrumur og eldingar! Töff myndband með „dimmum” pælingum en samt eitthvað svo fallegt.“



Klippa: Herra hnetusmjör - Fóbó


Herra hnetusmjör - Fóbó - Leikstjóri: Eiður Birgisson

„Frábært myndband og virkilega vel hugsað og skotið. Maður fær það á tilfinninguna að maður sé að horfa á erlenda spennumynd. Skemmtileg saga með trylltum „slow motion“ senum.“



Klippa: Hugar - Saga


Hugar - Saga - Leikstjóri: Máni Sigfússon

„Virkilega vel skotið og klippt myndband en einnig er lýsingin alveg til fyrirmyndar. Stemningin í myndbandinu er margþrungin og smellpassar laginu. Tilfinningaríkt og þétt.“



Klippa: Ólafur Arnalds - re:member


Ólafur Arnalds - re:member - Leikstjóri: Thora Hilmar

„Virkilega töff myndband sem kannski passar ekkert endilega við lagið. Sem er ótrúlega skemmtilegt og fær myndbandið samt til að virka á einhvern ótrúlegan flottan hátt. Skemmtilegar tökur og gott andrúmsloft.“



Klippa: Special-K - Date Me I´m Bored


Special-K - Date Me I’m Bored - Leikstjóri: Kristín Helga Ríkharðsdóttir

„Special-K er lundi, allavega í þessu myndbandi. Hér fá litir að njóta sín afar vel og öll umgjörð myndbandsins er til fyrirmyndar, sem og allar pælingar. Búningar, förðun og lýsing gerir myndbandið frekar furðulegt en samt svo mjög skemmtilegt.“



Klippa: Teitur Magnússon ásamt Mr. Silla - Orna


Teitur Magnússon ásamt Mr. Silla - Orna - Leikstjóri: Logi Hilmarsson

„Teitur er einkar lunkinn við að semja hressar melódíur sem festast við hausinn á manni. Myndbandið við Orna er einkar skemmtilegt og smellpassar andrúmslofti lagsins. Teitur er auðvitað galdrakall þannig að myndbandið er ekkert svo langt frá persónuleika hans. Mjög skemmtilegt.“



Í tengdum skjölum hér fyrir neðan má nálgast rökstuðning dómnefnda við hverja tilnefningu í öllum flokkum.

Tengd skjöl

Rokk, popp, raf, rapp og hip hop - Rökstuðningur dómnefndar

Sígild og samtímatónlist - Rökstuðningur dómnefndar

Opinn flokkur - Rökstuðningur dómnefndar

Djass og blús - Rökstuðningur dómnefndar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×