Innlent

Vitni lýsir hrottalegri árás á unga konu við Háaleitisbraut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Árásin var gerð við gatnamót Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar, þ.e. innan svæðisins sem afmarkað er af rauðum hring á myndinni.
Árásin var gerð við gatnamót Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar, þ.e. innan svæðisins sem afmarkað er af rauðum hring á myndinni. Vísir
Karlmaður sem handtekinn var fyrir líkamsárás við gatnamót Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar um hádegisbil í dag verður yfirheyrður á morgun. Tvær ungar konur urðu fyrir árás mannsins en aðeins var minnst á eina í fyrstu tilkynningu lögreglu um málið. Vitni sem kom að árásinni lýsir henni sem „hrottalegri“.

Lögregla sendi út tilkynningu um málið á þriðja tímanum í dag. Þar segir að maður í annarlegu ástandi sé grunaður um að hafa sparkað í bifreið og í framhaldinu gengið í skrokk á ökumanninum, ungri konu sem flutt var á slysadeild til skoðunar.

Áður komið við sögu lögreglu

Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að maðurinn, sem var gangandi vegfarandi á svæðinu, hafi verið handtekinn klukkan eitt og færður í fangageymslu. Hann verði yfirheyrður á morgun sökum „mjög annarlegs ástands“. Búið er að taka skýrslu af nokkrum vitnum að árásinni.

Að sögn Guðmundar hefur maðurinn áður komið við sögu lögreglu. Guðmundur segir manninn hafa ráðist á ökumann bílsins og unga konu á svipuðu reki, að því er virðist að tilefnislausu. Konurnar eru báðar um átján ára en þær slösuðust ekki alvarlega í árásinni.

„Þær eru náttúrulega í sjokki. Þetta eru ungar stelpur, önnur nýorðin átján,“ segir Guðmundur.

 

Henti konunni inn í runna og stappaði á henni

Snorri Barón Jónsson framkvæmdastjóri lýsir því á Facebook í dag að hann hafi orðið vitni að árásinni við gatnamót Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar ásamt vini sínum í hádeginu í dag. Hann lýsir árásinni sem „hrottalegri“.

„Fullvaxta karlmaður gekk hrottalega í skrokk á ungri konu uppi á gangstétt á mótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar eftir að hafa orðið ósáttur við að bíllinn sem hún ók skagaði lítillega inná gangbrautina. Hann byrjaði á að sparka í bílinn hennar og garga duglega á hana,“ skrifar Snorri.

Þá segir hann manninn hafa „hjólað í“ konuna þegar hún steig út úr bílnum og hafið barsmíðar.

„Við Jens vorum fastir á rauðu ljósi hinum megin við og gátum ekki brugðist við fyrr en hann var búinn að ná að lumbra ansi duglega á henni, henda henni inn í runna og stappa á henni þar.“

Snorri segir stúlkuna hafa verið í miklu áfalli en lögregla og sjúkrabíll hafi fljótlega komið á vettvang. Snorri vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar Vísir náði tali af honum í dag en færsluna má sjá hér að neðan.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×