Handbolti

FH-ingurinn Árni Stefán tekur við Haukaliðinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Árni Stefán himinlifandi í rauðu ásamt Aroni Kristjánssyni og Þorgeiri Haraldssyni.
Árni Stefán himinlifandi í rauðu ásamt Aroni Kristjánssyni og Þorgeiri Haraldssyni. mynd/haukar
Haukar tilkynntu í morgun að Árni Stefán Guðjónsson myndi þjálfa kvennalið félagsins næsta vetur.

Árni Stefán tekur við liðinu af Elíasi Má Halldórssyni sem er að stíga til hliðar í lok tímabilsins. Elías mun þá taka við karlaliði HK.

Árni Stefán er 32 ára gamall FH-ingur og hefur þjálfað hjá Fimleikafélaginu síðan 2004. Hann fær nú stóra tækifærið hjá erkióvininum í Firðinum.

Samningur þjálfarans við Haukana er til tveggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×