Innlent

Segir vinnustöðvun í hótel- og gistiþjónustu áhyggjuefni

Andri Eysteinsson skrifar
Kristófer Oliversson segir stöðuna sem komin er upp mjög alvarlega. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur boðað til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun.
Kristófer Oliversson segir stöðuna sem komin er upp mjög alvarlega. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur boðað til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun. Samsett/Vilhelm/Eyþór
Fyrirhuguð vinnustöðvunarboðun Eflingar á veitinga- og gistihúsum er áhyggjuefni segir Kristófer Oliversson formaður FHG - Fyrirtæki í Hótel- og Gistiþjónustu.

Samninganefnd Eflingar samþykkti á fundi sínum í kvöld að láta fara fram atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar á veitinga- og gistihúsum 8. Mars næstkomandi. Vinnustöðvunin næði til allra þrifa og hreingerninga og stæði yfir frá morgni til kvölds á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

„Í sjálfu sér skiptir mestu máli hvað verður í framhaldinu en auðvitað hafa allir áhyggjur af þessu,“ sagði Kristófer í samtali við Fréttastofu. „Ég vona bara að fólk fari að snúa sér að því að semja.“

Segir aðgerðirnar búhnykk fyrir skuggahagkerfið

Kristófer segir enn fremur að aðgerðirnar komi sér ekki á óvart. „Það hefur legið í loftinu um nokkuð skeið að Efling hyggst beita sér gegn hótelgeiranum svo þetta kemur ekki á óvart. Það er engu að síður mjög alvarlegt að þessi staða sé komin upp,“

Kristófer segist einnig hafa viljað sjá aðgerðum beitt gegn leyfislausri starfsemi. „Það má ekki gleyma því að um helmingur framboðinna herbergja í miðborg Reykjavíkur er ýmiss konar íbúðagisting, sem er að langstærstum hluta leyfislaus. Aðgerðir gegn löglega reknum fyrirtækjum verður væntanlega búhnykkur fyrir skuggahagkerfið,“ segir Kristófer.

Eins og áður segir næði vinnustöðvunin til starfsfólks sem sinnir þrifum, hreingerningu og frágangi herbergja í gistiaðstöðu á stórum hluta suðvesturhornsins, komi til stöðvunarinnar munu herbergin því ekki vera þrifin.

Sendir alvarleg skilaboð út í markaðinn

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), Jóhannes Þór Skúlason, sagði í Kvöldfréttum Stöðvar 2 að þar sem bókunartími fyrir háannatímann í ferðaþjónustunni standi nú yfir gætu verkfallsaðgerðir haft slæm áhrif á orðspor ferðaþjónustunnar. Kristófer segir að ekki sé hægt að fullyrða um hvort að svo verði komi til vinnustöðvunar 8.mars.

„Það sem er alvarlegt í þessu er að þetta sendir þau skilaboð út í markaðinn að verkföll séu hafin á Íslandi, sem er mjög alvarlegt“, segir Kristófer.

Kristófer telur að líklega sé ekki ætlun Eflingar að setja ferðaþjónustuna á hliðina með vinnustöðvuninni, frekar sé ætlunin að kanna styrkinn og liðsheildina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×