Heimsmarkmiðin

Sendifulltrúi Rauða krossins til Nígeríu

Heimsljós kynnir
Baldur Steinn Helgason.
Baldur Steinn Helgason. Rauði krossinn.
Baldur Steinn Helgason, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, hélt í síðustu viku af stað til Nígeríu. Hann starfar þar í matsteymi Alþjóðasambandi Rauða krossins (IFRC) og stýrir birgðastjórnun fyrir skrifstofu sambandsins í Abuja. Verkefnið tengist neyðarviðbrögðum vegna flóða sem urðu í mið- og suðurhluta Nígeríu á síðasta ári.

Mikil flóð verða oft á þessu svæði og ósjaldan mannskaði. Rúmlega eitt hundrað íbúar fórust í flóðunum síðastliðið haust. Þá flosnuðu upp af heimilum sínum rúmlega ein milljón íbúa í tíu héruðum.

Baldur er þróunar- og skipulagsfræðingur og hefur verið á Veraldarvakt Rauða krossins í rúman áratug eða frá 2005. Hann hefur komið að fjölda verkefna á vegum Rauða krossins á þessum árum. Hann hefur víðtæka þjálfun og þekkingu á þessu sviði og Rauði krossinn hefur meðal annars notið góðs af störfum hans í verkefnum í Indónesíu, Níger, Malí.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.






×