Innlent

Skoða fjölda nýrra ábendinga í tengslum við hvarf Jóns Þrastar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Davíð Karl Wiium (til hægri) er nú staddur í Dyflinni þar sem hann leitar bróður síns, Jóns Þrastar Jónssonar (til vinstri).
Davíð Karl Wiium (til hægri) er nú staddur í Dyflinni þar sem hann leitar bróður síns, Jóns Þrastar Jónssonar (til vinstri).
Bróðir Jóns Þrastar Jónssonar, Íslendingsins sem hvarf í Dyflinni fyrir tæpum tveimur vikum, segir fjölda ábendinga hafa borist aðstandendum og lögreglu í tengslum við hvarf bróður síns. Þessar ábendingar eru á meðal þess sem farið verður yfir á fundi fjölskyldunnar og lögreglu í kvöld. Þá er búist við góðri þátttöku í stórri sjálfboðaliðaleit að Jóni Þresti í Dyflinni á morgun.

Jón Þröstur fór til Dyflinnar á Írlandi ásamt kærustu sinni um þarsíðustu helgi til að skoða kastala og taka þátt í pókermóti. Hann gekk út af hóteli sínu í Dyflinni eftir eins og hálfs dags dvöl og hefur ekki sést síðan. Lögregla í Dyflinni fer með rannsókn málsins en fjölskylda Jóns Þrastar fór út til Írlands að leita hans þegar hann hafði verið týndur í tvo daga.

Sjá einnig: Fjölskylda Jóns Þrastar gagnrýnin á lítil afskipti yfirvalda í málinu: „Hann er kletturinn í fjölskyldunni“

Davíð Wiium, bróðir Jóns Þrastar, er staddur í Dyflinni. Hann segir í samtali við Vísi að leitað hafi verið að Jóni Þresti á skipulögðum leitarsvæðum í borginni undanfarna daga.

„Það gekk mjög vel, við erum svo til eiginlega búin með þau, án þess að verða mikils vísari en við náðum að hengja upp um 4000 veggspjöld og höfum fengið mikið af ábendingum í kjölfarið sem er bara verið að vinna úr.“

Tuttugu heimamenn taka þátt

Deginum í dag verður svo varið í undirbúning stórrar sjálfboðaliðaleitar sem boðað var til fyrir skömmu og fer fram á morgun á milli 9:30 og 15. Davíð segir að verið sé að undirbúa leitarsvæðið og setja saman teymi og leiðbeiningar. Aðspurður segir hann erfitt að meta hversu margir taki þátt í leitinni en allt að hundrað manns gætu þó látið sjá sig.

Fjölskylda Jóns segir að hann sé mikill fjölskyldumaður.
„Við héldum fund í gær með þeim sem eru að hjálpa okkur að skipuleggja þetta og þar voru um tuttugu Írar sem verða á morgun. Og þeir eru að tala um að þetta verði allavega á milli þrjátíu til sextíu manns, jafnvel mun meira, og svo náttúrulega verðum við Íslendingarnir. Þannig að já, okkur hefur tekist að smala saman þvílíku gengi.“

Verið að vinna úr fullt af ábendingum

Klukkan 15 síðdegis í dag hefur fjölskylda Jóns Þrastar verið boðuð á fund með ræðismanni Íslands á Írlandi. Í kvöld mæta aðstandendur svo á fund með lögreglu í Dyflinni. Aðspurður segir Davíð að fjöldi ábendinga hafi borist frá fólki í tengslum við hvarf Jóns Þrastar, misáreiðanlegar þó.

„Þetta hefur allt verið tekið saman og sent inn til lögreglu sem er með þetta til skoðunar. Þetta náttúrulega tekur tíma, að vinna úr ábendingum, það þarf að fara yfir upptökuvélar og sannreyna ábendingarnar og svoleiðis. Þannig að það er fullt af nýjum ábendingum frá því að við fórum að leita en það eru engar frekari upplýsingar um það hvar hann gæti mögulega verið að svo stöddu. En það er verið að vinna úr fullt af ábendingum sem er alltaf góðs viti.“

Og það er eitthvað sem þið ætlið að ræða við lögreglu í kvöld?

„Væntanlega meðal annars, já.“

Hrint hefur verið af stað GoFundMe-söfnun vegna leitarinnar að Jóni Þresti. Fénu verður varið í framfærslukostnað fyrir sjálfboðaliða og aðstandendur Jóns Þrastar sem ferðast hafa til Dyflinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×