Enski boltinn

Forsetinn sá Jóhann Berg leggja upp sigurmarkið gegn Tottenham

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jóhann leggur upp sigurmarkið í dag.
Jóhann leggur upp sigurmarkið í dag. vísr/getty
Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp sigurmark Burnley sem vann frábæran sigur á Tottenham á heimavelli í dag í ensku úrvalsdeildinni.

Jóhann Berg kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og fimm mínútum síðar var hann búinn að leggja upp sigurmarkið fyrir Ashley Barnes.

Sigurinn var mikilvægur fyrir Burnley sem er að berjast í kringum falldrauginn en sigurinn lyfti liðinu upp í fjórtánda sæti deildarinnar og sex stigum frá fallsæti.

Eftir leikinn birti Jóhann mynd af sér og Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, en hann var í stúkunni og sá því stoðsendinguna hjá landsliðsmanninum í dag. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×