Golf

Tók golfhögg á nærbuxunum út í vatni | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Allt lagt undir. Stefani á nærbuxunum út í vatni.
Allt lagt undir. Stefani á nærbuxunum út í vatni.
Bandaríski kylfingurinn Shawn Stefani lagði bókstaflega allt undir er hann tók eitt af eftirminnilegustu höggum ársins á eftirminnilegu móti af Honda Classic.

Hann hafði slegið boltann út í vatn á mótinu árið 2017 en vatnið var grunnt og legan ágæt. Stefani vildi ekki taka víti og vippaði sér því úr fötunum og fór á nærbuxunum einum saman út í vatnið til þess að taka höggið.





„Vonandi varð konan mín ekki fyrir vonbrigðum. Ég var að berjast fyrir fjölskyldu mína. Ég var að berjast fyrir því að komast í gegnum niðurskurðinn,“ sagði Stefani en gæti hann hugsað sér að verða nærfatamódel? „Ég var í Calvin Klein nærbuxum. Vonandi leit ég vel út. Ég hef verið duglegur að fara í ræktina.“

Höggið úr vatninu heppnaðist vel en hann náði þó ekki að bjarga pari á holunni og varð að sætta sig við skolla.

Að lokum dugðu þessi hetjulegu tilþrif ekki til þess að komast í gegnum niðurskurðinn. Stefani var tveimur höggum frá honum en sló þó í gegn. Spurning hvað gerist svo á þessu skemmtilega móti þetta árið.

Mótið verður í beinni á Golfstöðinni og hefst það á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×