Lífið

Egill tók íbúðina í nefið og fórnaði heilu herbergi fyrir fötin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Egill er mikill smekkmaður.
Egill er mikill smekkmaður.
Egill Ásbjarnarson á og rekur Suitup Reykjavik var gestur í þættinum Heimsókn á Stöð 2 í gærkvöldi og hann keypti sér þriggja herbergja íbúð á Flyðrugranda í júlí á síðasta ári.

Egill ákvað að taka íbúðina alveg í gegn, fækka herbergjum og búa sér til svítu með risastóru fatahorni. Íbúðin var með tveimur svefnherbergjum en Egill reif niður vegg, lokaði fyrir hurð inn í barnaherbergið og var því kominn með rosalega falleg stórt herbergi með góðri aðstöðu fyrir fötin.

Íbúðin var komin til ára sinna og fengu áhorfendur Stöðvar 2 að sjá íbúðina fyrir og síðan eftir breytingar.

Hér að neðan má sjá brot úr þættinum sem gefur vísbendingu hvernig breytingarnar heppnuðust en Heimsókn er á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum. 


Tengdar fréttir

Heitustu piparsveinar landsins

Fegurð íslenskra kvenna er heimsþekkt en glæsileiki íslenskra karlmanna hefur hins vegar ekki farið eins hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×