Lífið

Stærsta gjöf í sögu Ellen þáttanna olli táraflóði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ellen gefur oft en aldrei áður svona mikið.
Ellen gefur oft en aldrei áður svona mikið.
Hjónin Christi og Robert Daniels hafa töluvert verið í Ellen þáttunum að undanförnu. Þau vöktu fyrst athygli fyrir myndband sem þau sendu inn af sér að dansa. Í kjölfarið bauð Ellen parinu í þáttinn ásamt fjórum sonum þeirra.

Þá gengu þau út með heilt fjall af gjöfum en fyrir helgi var þeim óvænt boðið aftur í þáttinn. Þá hafði Ellen planað stærstu gjöf í sögu þáttanna.

Daniels-hjónin búa í tveggja svefnherbergja íbúð og eru þau illa fjárhagslega stödd. Fyrirtækið Cheerios ákvað því að gefa fjölskyldunni 500.000 dollara eða því sem samsvarar 60 milljónir íslenskar krónur. Viðbrögð þeirra voru eðlilega mikil og hágrétu allir fjölskyldumeðlimir á sviðinu. Einnig mátti sjá tár á hvarmi á gestum í sal.

Þarna var sagan ekki búinn. Cheerios ákvað að gefa fjölskyldunni 500.000 dollara að auka og samanlagt eina milljón dollara. Hjónin fá að gefa seinni upphæðina til góðgerðamála að eigin vali.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×