Skoðun

Opið bréf til Páls Óskars vegna tillögu um sniðgöngu

Yair Sapir skrifar
Kæri Páll Óskar,

Bilal og Mahmood taka þátt í Tel Aviv í Eurovision keppninni að fagna fjölbreytileika í maí á þessu ári. Mahmood, sem er hálfur Egypti og hálfur Ítali, verður fulltrúi Ítalíu og Bilal Hassani, ungur samkynhneigður Marokkóbúi, verður fulltrúi Frakklands. Báðir hafa þeir arabiskan, múslímskan bakgrunn. Bilal væri líklegast dáinn ef hann hefði ekki flutt frá Marokkó. Vegna sæmdarmenningar og hefðar er ekkert svigrúm fyrir fjölbreytileika þar. Samkvæmt Amnesty International kúgar palestínska heimastjórnin og Hamas ítrekað þegna sína á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum. Þar að auki hafa ekki farið fram forsetakosningar á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum síðan árið 2005. Samkynhneigðir hafa þar engin réttindi! Hundruð Palestínumanna hafa flúið til Ísraels eftir að palestínska sjálfstjórnin tók yfir á Vesturbakkanum og Gaza svæðinu. Vegna ótta um líf sitt hafa þessir Palestínumenn fengið pólitískt hæli í Ísrael. Ísrael fagnar fjölbreytileika! Finnst þér ennþá að það eigi að sniðganga Eurovision keppnina í Ísrael?

Ég hef séð og hitt persónulega marga af svokölluðum vinum Palestínu sem í raun hafa reynst meiri óvinir Ísraels og/eða gyðinga en vinir Palestínumanna. Sem sannur vinur Palestínumanna, af hverju vinnur þú ekki að uppbyggilegum samræðum, uppbyggingu innviða, menntun, heilbrigðismálum, velferðarmálum og mannréttindum á sjálfstjórnarsvæðunum? Af hverju gagnrýnirðu ekki þá staðreynd að engar forsetakosningar hafa verið haldnar á sjálfstjórnarsvæðunum síðan 2005 og að Palestínumönnum hafi þannig verið meinað að segja skoðanir sínar og byggja upp sína eigin framtíð? Af hverju gagnrýnirðu ekki þá staðreynd, að leiðtogar Palestínumanna nota milljarða styrki frá heimsbyggðinni í spillingu og hryðjuverkastarfsemi frekar en að fjármagnið nýtist þegnunum? Samræður, menntun, mannréttindi og velferðarmál stuðla að velgengni í heiminum en ekki það að sniðganga! Sökum skorts á góðu heilbrigðiskerfi leita Palestínumenn til Ísraels. Sökum skorts á atvinnutækifærum sækja Palestínumenn vinnu til Ísraels. Þegar ísraelska Sodastream lokaði verksmiðjum sínum á Vesturbakkanum, vegna viðskiptaþvingana og pressu frá BDS (Boycott, Divestment, Sanctions-hreyfingunni) árið 2015, misstu hundruð Palestínumanna vinnuna. Viðskiptaþvinganirnar fóru hljóðlega fram því velferð Palestínumanna skiptir BDS ekki máli.



Þar af leiðandi velti ég því fyrir mér hvort fylgjendur viðskiptaþvinganna séu í raun og veru að taka tillit til Palestínumanna sem mannfólks sem hafa burði til að bera ábyrgð á sínum eigin gjörðum og örlögum. Eða hvort Palestínumenn séu eingöngu hlutir, ævarandi fórnarlömb, fallbyssufóður og eingöngu tæki til að koma í veg fyrir sjálfstætt ríki Gyðinga? Heilagt stríð mun ekki gefa Palestínumönnum eigið ríki. Það mun eingöngu þvinga Ísrael til að tryggja öryggi borgara sinna, þ.m.t. milljóna Araba. Ef þú virkilega trúir á lýðræði, mannréttindi, réttindi samkynhneigðra og fjölbreytileika, styddu þá Ísrael og dreifðu þessum gildum meðal Palestínumanna líka! Það myndi gefa þeim tækifæri til að skilgreina sig sem einstaklinga og sem þjóð!



Hatursherferð gegn Ísrael, Páll Óskar, mun styrkja spillt og hræðilegt palestínskt samfélag þar sem engin mannréttindi, menntun, heilbrigðis- og velferðarkefi þrífast. Ef þú trúir raunverulega á fjölbreytileika, fylgdu þá Nettu, fylgdu Mahmood, fylgdu Bilal og þúsundum annarra, hvort sem um er að ræða gagnkynhneigða, samkynhneigða, transfólk, gyðinga, múslima, kristið fólk, trúleysingja eða aðra, í mestu hátíð fjölbreytileikans í Mið-Austurlöndum. Þú veist jafn vel og ég, Páll Óskar, að hvergi í Mið-Austurlöndum nema Ísrael væri svona hátíð framkvæmanleg!

Yair Sapir er tónlistarmaður og doktor í norrænum málvísindum búsettur í Kaupmannahöfn


Tengdar fréttir

Ummæli Páls Óskars um gyðinga og Helförina vekja undrun og furðu

Ummæli tónlistarmannsins Páls Óskars Hjálmtýssonar um að gyðingar hafi ekki lært neitt af Helförinni og að þeir hafi saumað sig "í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma“ hafa vakið bæðu undrun og furðu á samfélagsmiðlum.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×