Erlent

El Chapo sakfelldur

Samúel Karl Ólason skrifar
Glæpaferill Guzman spannar meira en 25 ár og er talið að hann hafi smyglað meira en 200 tonnum af kókaíni inn í Bandaríkin.
Glæpaferill Guzman spannar meira en 25 ár og er talið að hann hafi smyglað meira en 200 tonnum af kókaíni inn í Bandaríkin. Vísir/AP
Glæpaforinginn Joaquin Guzman, sem er betur þekktur sem El-Chapo, hefur verið dæmdur til fangelsisvistar í Bandaríkjunum. Guzman var einn alræmdasti fíkniefnasmyglari heims áður en hann var handsamaður en umfangsmikil glæpasamtök hans smygluðu marijúana, kókaíni, heróíni og amfetamíni frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Guzman var ákærður í ellefu liðum.

Það tók kviðdómendur í New York sex daga að komast að niðurstöðu í máli Guzman. Hún er að hann var dæmdur sekur í fjölda ákæruliða sem snúa að mestu að rekstri glæpasamtaka og fíkniefnasölu. Dómsuppkvaðning hefur ekki farið fram en talið er að Guzman, sem er 61 árs gamall, muni sitja í fangelsi út líf sitt.

Sjá einnig: Þóttist vera rússneskur mafíósi til að snúa tölvusérfræðingi El Chapo



Þá verður Guzman settur í fangelsi með gífurlegri öryggisgæslu en hann þykir háll sem áll. Áður en hann var framseldur til Bandaríkjanna slapp hann tvisvar úr fangelsi í Mexíkó. Í fyrra skiptið nýtti hann sér þvottakörfu, en í seinna skiptið slapp hann í gegnum jarðgöng úr klefa sínum.

Réttarhöldin hafa staðið yfir undanfarna þrjá mánuði og hafa á sjötta tug manna borið vitni gegn Guzman. Þar komu ýmsar upplýsingar fram um hvernig Sinaloa-samtökin, sem Guzman leiddi, öfluðu milljörðum dala með fíkniefnasölu og ofbeldi.

Vitni lýstu meðal annars því hvernig Guzman fyrirskipaði launmorð, mútaði embættismönnum og smyglaði fíkniefnum inn í Bandaríkin.

Sjá einnig: El Chapo sagður hafa greitt forseta Mexíkó 100 milljónir dala



Glæpaferill Guzman spannar meira en 25 ár og er talið að hann hafi smyglað yfir 200 tonnum af kókaíni til Bandaríkjanna. Málsvörn verjenda hans tók einungis um þrjátíu mínútur. Verjendur hans sögðu ákærurnar gegn honum byggja á sögum glæpamanna sem „ljúgi, steli, svindli, selji fíkniefni og myrði fólk“.

Guzman sjálfur tók þá ákvörðun að bera ekki vitni á meðan á réttarhöldunum stóð.

Hér að neðan má sjá myndband frá því þegar Guzman var handtekinn í Mexíkó árið 2016.


Tengdar fréttir

Þóttist vera rússneskur mafíósi til að snúa tölvusérfræðingi El Chapo

Svo virðist sem að tölvusérfræðingur mexíkóska eiturlyfjabarónsins Joaquín Guzmán Loera, betur þekktur sem El Chapo, hafi gegnt lykilhlutverki í árangursríkri aðgerð bandarísku alríkislögreglunnar FBI við að handtaka El Chapo og brjóta á bak aftur umfangsmikla glæpastarfsemi hans




Fleiri fréttir

Sjá meira


×