Körfubolti

Innkastið endaði ofan í körfunni | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
vísir/getty
Ótrúlegir hlutir gerast oft í íþróttum en það sem gerðist í framhaldsskólaleik í Bandaríkjunum á dögunum var ansi einstakt.

Leikmaður sóknarliðsins var að kasta boltanum inn á völlinn. Hann var undir pressu frá varnarmanni sem náði að slá hendinni í boltann.

Ekki vildi betur til en svo að boltinn tók stefnuna beint á körfuna og ofan í fór hann. Leikmaðurinn skoraði því úr innkastinu.

Þetta magnaða atvik má sjá hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×