Innlent

„Fáránleg tímasetning“ á launahækkun bankastjóra

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Friðbert Traustason framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja segir félagsmenn undrandi á launahækkun bankastjóra Landsbankans á meðan erfiðir kjarasamningar standi yfir.
Friðbert Traustason framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja segir félagsmenn undrandi á launahækkun bankastjóra Landsbankans á meðan erfiðir kjarasamningar standi yfir. Vísir/GVA
Friðbert Traustason framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja segir félagsmenn undrandi á launahækkun bankastjóra Landsbankans á meðan erfiðir kjarasamningar standi yfir. Á sama tíma haldi hagræðingar áfram í bönkunum sem bitni einkum á eldri konum með langan starfsaldur. Stjórnendur bankanna ættu að sýna meiri samfélaglega ábyrgð.

Formenn ýmissa stéttarfélaga, framkvæmdastjóri SA og þingmenn og ráðherrar hafa gagnrýnt harðlega launahækkun bankastjóra Landsbankans en frá árinu 2017 hafa þau hækkað um 82 prósent og eru mánaðarlaunin í dag þrjár komma átta milljónir króna. Bankastjóri Íslandsbanka er með fjórar komma tvær milljónir króna og bankastjóri Arion banka sem er skráður í Kauphöll Íslands eru sex komma tvær milljónir króna. Friðbert Traustason framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja segir félagsmenn undrandi á launum æðstu stjórnenda í ríkisfyrirtækjum líkt og dæmin sanni nú um Landsbankann. 

„Flestir eru fyrst og fremst hissa yfir því að mönnum skuli detta í hug að hækka laun bankastjóra á þessum tíma þegar kjarasamningar eru á erfiðum stað og ekkert gengur. Flestir bjuggust við einhverri jöfnun milli launa bankastjóra ríkisbankanna en mönnum finnst vel í lagt og fáránleg tímasetning,“ segir Friðbert. 

Launahækkanir á sama tíma og hagræðingaraðgerðir hafi staðið yfir

Friðbert segir að frá hruni bankanna árið 2008 hafi um 2.500 bankastarfsmönnum verið sagt upp störfum og mannafli í bönkunum dregist saman um 40 prósent. Þetta sé vegna hagræðingaraðgerða, lokanna á útibúum og breytinga á störfum. Á síðustu árum hafi uppsagnir einkum bitnað á eldri konum sem gert hafi bankastarfið að ævistarfi.

„Það fer mjög illa í þá sem vinna þessi störf sem hafa lent í uppsögnum undanfarin ár að verið sé að hækka launin með þessum hætti. Uppsagnirnar bitna fyrst og fremst á konum á aldrinum 55 með kannski 30 ára starfsaldur sem hafa starfað í útibúum bankanna sem nú hefur verið lokað. Þetta eru konur á aldrinum 55 ára og eldri með kannski 30 ára starfsaldur hafa gert bankastörf að ævistörfum sínum. Hjá sumum er jafnvel örsutt í að komast á eftirlaun,“ segir Friðbert.  

Hann telur að stjórnendur bankanna ættu að haga þessum málum með öðrum hætti. 

„Það er alveg ljóst að það ætti að tempra sig í efri lögunum bankanna og hafa fólkið ívið lengur í vinnu og koma vel fram við það, þetta er svona þessi samfélagslega ábyrgð líka,“ segir Friðbert. 




Tengdar fréttir

Heildarlaun bankastjóra Arion banka hækka um 4,9 prósent milli ára

Ársreikningur Arion banka fyrir árið 2018 verður ekki birtur fyrr en á morgun en samkvæmt upplýsingum frá bankanum hækkuðu heildarlaun Höskuldar Ólafssonar, bankastjóra Arion banka um 4,9% milli ára og voru 6,2 milljónir á mánuði árið 2018.

Launahækkun bankastjóra óskynsamleg og óverjandi ákvörðun

Skýrsla um eftirlitshlutverk Landhelgisgæslunnar sem lögð hefur verið fyrir þjóðaröryggisráð varpar ljósi á slæma stöðu gæslunnar. Óþekkt skip fá að athafna sig í íslenskri lögsögu án þess að gæslan hafi hugmynd um það. Atvi

Formaður Framsýnar segir útskýringar á launahækkun bankastjóra bull

Formaður Framsýnar stéttarfélags segir afar neikvætt að verið sé að vara við hækkunum launa hjá verkafólki á meðan laun bankastjóra í ríkisbanka hækki margfalt. Hann gefur lítið fyrir skýringar bankans á ástæðum fyrir launahækkuninni og segir þær bull.

Laun bankastjórans hækkað um 82 prósent

Þann 1. apríl 2018 voru mánaðarlaun bankastjóra Landsbankans hækkuð um 550 þúsund krónur. Tíu mánuðum áður höfðu þau hækkað um 1,2 milljónir. Eru nú 3,8 milljónir. Bankaráð segir þau nú nær því að vera samkeppnishæf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×