Úlfarnir í 8-liða úrslit eftir nauman sigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Úlfarnir í 8-liða úrslit
Úlfarnir í 8-liða úrslit vísir/getty
Úrvalsdeildarlið Wolverhampton Wanderers er komið í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir sigur á Bristol City í fyrsta leik dagsins í enska bikarnum.

Leikið var á heimavelli Bristol City en það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins þar sem Portúgalinn Ivan Cavaleiro var á skotskónum eftir tæplega hálftíma leik.

Reyndist það svo eina mark leiksins og Úlfarnir því komnir í 8-liða úrslit ásamt Brighton, Millwall, Man City og Watford.

Tveir leikir hefjast í enska bikarnum klukkan 16 þar sem Doncaster Rovers fær Crystal Palace í heimsókn á meðan Brentford heimsækir Swansea. 16-liða úrslitunum lýkur svo með stórleik Chelsea og Man Utd annað kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira