Lífið

Courteney Cox komin yfir tvítugt þegar hún missti meydóminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Cox var þrítug þegar hún byrjaði að leika í Friends.
Cox var þrítug þegar hún byrjaði að leika í Friends.
Leikkonan Courteney Cox, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Monica í Friends, var gestur hjá James Corden í síðustu viku. Þar ræddi hún um það hvenær hún missti meydóminn og var hún eldri en margir.

Þessi 54 ára leikkona sagði frá því að hún hafi fyrst stundað kynlíf 21 árs.

„Ég vissi aldrei neitt um þetta og mamma talaði aldrei um þetta við mig,“ sagði Cox.

„Ég ætti líklega ekki að segja frá þessu, en ég ætla samt að gera það. Ég var hrein mey fram að 21 árs aldri. Ég er bara stolt af því í dag.“

Hér að neðan má sjá samtalið við Courteney Cox.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×