Innlent

Eiga fund með lögreglu í dag

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Jón Þröstur Jónsson.
Jón Þröstur Jónsson.
Enn hefur ekkert spurst til Jóns Þrastar Jónssonar, sem hvarf í Dyflinni um síðustu helgi.

„Ég er eiginlega bara að lognast út af,“ segir Davíð Karl Wium, bróðir Jóns, þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi, og augljóslega mjög þreyttur en Davíð hefur leitað bróður síns í Dublin frá morgni til kvölds undanfarna daga ásamt fjölskyldu og vinum.

„Við erum enn engu nær,“ segir Davíð en fjölskyldan mun funda með lögreglunni í Dublin í dag. Þá á eftir að ljúka við að kemba það svæði sem afmarkað var sérstaklega til leitarinnar.

Davíð segir ekkert benda til þess að eitthvað saknæmt hafi leitt til hvarfs Jóns Þrastar en ekkert þeirra geti þó áttað sig á aðdraganda hvarfsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×