Enski boltinn

Segir Özil þann besta sem hann hefur spilað með

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gnabry í leik með Bayern.
Gnabry í leik með Bayern. vísir/getty
Serge Gnabry, vængmaður Bayern Munchen, segir að Mesut Özil sé besti leikmaður sem hann hefur spilað með á ferlinum en kapparnir spiluðu saman hjá Arsenal.

Gnabry var á mála hjá Arsenal frá 2011 til 2016 og síðustu tvö árin spilaði hann með Özil áður en Gnabry ákvað að fara til Þýskalands er hann gekk í raðir Werder Bremen.

„Ég hef nú þegar spilað með mörgum góðum leikmönnum en ef ég þyrfti að velja einn þá væri það Mesut Özil,“ sagði Gnabri í samtali við Goal.

„Gæðin sem hann hefur sýnt mér á æfingum og í leikjum eru ótrúleg,“ sagði Gnabry enn fremur en Özil hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu.

Hann var ekki í leikmannahópi Arsenal sem tapaði 1-0 fyrir Bate Borisov á fimmtudagskvöldið í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Hann hefur einungis byrjað þrjá af síðustu tólf leikjum og er ekki í plönum Unai Emery, stjóri Arsenal.

Gnabry verður líklega í eldlínunni í kvöld er Bayern spilar gegn Liverpool á Anfield í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×