Sport

Biles og Djokovic unnu Lárusinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Djokovic með verðlaunin sín í gær. Biles gat ekki mætt á svæðið.
Djokovic með verðlaunin sín í gær. Biles gat ekki mætt á svæðið. vísir/getty
Hin virtu Laureus-verðlaun, eða Lárusinn, voru veitt í gær og kom fáum á óvart að fimleikakonan Simone Biles og tenniskappinn Novak Djokovic skildu hafa verið valin íþróttafólk ársins.

Biles vann til fjögurra gullverðlauna á HM í fimleikum á síðasta ári. Hún fékk líka eitt silfur og eitt brons. Djokovic gerði sér lítið fyrir og vann tvö risamót á síðasta ári - US Open og Wimbledon.

Tiger Woods fékk endurkomuverðlaunin en tenniskonan Naomi Osaka var valin nýliði ársins.

Franska landsliðið í knattspyrnu var svo valið íþróttalið ársins en liðið varð heimsmeistari í Rússlandi síðasta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×