Lífið

Jimmy Fallon lét Curry hafa krefjandi verkefni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Curry fór á kostum.
Curry fór á kostum.
Bandaríski spjallþáttstjórnandinn Jimmy Fallon fékk NBA-stjörnuna Steph Curry með sér í lið yfir Stjörnuleikjarhelgina á dögunum og gaf honum verkefni að koma þremur sérstökum setningum inn í viðtöl sem hann veitti um helgina.

Stjörnuleikurinn fer fram á ári hverju og þar mætast úrvalslið Austur- og Vesturdeildarinnar en Curry er í úrvalsliði Vestursins.

Setningarnar sem Curry átti að koma að í viðtölum voru: Energizer Bunny, Flipping pancakes og wham, bam, can og ham.

Í þætti Fallon í gær var þetta síðan sýnt og má sjá útkomuna hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×