Viðskipti innlent

KFC á Íslandi skiptir um franskar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sitt sýnist hverjum um þær franskar sem boðið hefur verið upp á hjá KFC á Íslandi.
Sitt sýnist hverjum um þær franskar sem boðið hefur verið upp á hjá KFC á Íslandi. KFC Á ÍSLANDI
Skyndibitakeðjan KFC á Íslandi mun innan tíðar reiða fram franskar kartöflur frá nýjum framleiðanda. Talsmenn keðjunnar hér á landi segja að þrátt fyrir breytingarnar ættu viðskiptavinir ekki að verða varir við mikinn mun nema þá kannski til hins betra.

Saga KFC á Íslandi spannar rúm 38 ár. Skyndibitakeðjan er í dag ein sú stærsta á landinu og rekur átta veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og í Keflavík. KFC seldi vörur fyrir tæpa 3,1 milljarða króna í fyrra og nam hagnaður keðjunnar um 138 milljónum króna.

Þrátt fyrir það virðist það vera nær samdóma álit netverja að frönsku kartöflurnar sem fylgja réttum KFC séu ekki í fremstu röð. Í því samhengi má nefna að kartöflur KFC rötuðu ekki á blað þegar spurt var um bestu frönsku kartöflur á Íslandi í upphafi árs.

Matarrýnir Viðskiptablaðsins, sem nú er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, var á sama máli árið 2014. Frönsku kartöflurnar væru þurrar og bragðlitlar.

„Staðurinn fengi fjórar stjörnur af fimm ef ekki væri fyrir franskarnar,“ skrifaði Lára Björg Björnsdóttir.

KFC á Íslandi hefur ekki farið varhluta af þessari umræðu, að sögn Kristínar Helgadóttur hjá KFC. Frönsku kartöflurnar hafi þannig verið „heit kartafla hér um árið,“ eins og Kristín orðar það, án þess þó að nefna ár í því samhengi.

Þetta hafi orðið til þess að ákveðið var að skipta um frönskubirgja á sínum tíma. Síðan þá hafa keðjunni ekki borist neinar kvartanir að sögn Kristínar.

Nú stendur til að skipta aftur um birgja og um leið bjóða upp á aðrar franskar kartöflur á KFC. Kristín segir að ákvörðunin um að skipta um framleiðanda sé tekin í kjölfar útboðs í Evrópu.

„KFC á Íslandi og í Evrópu vinnur eftir mjög ströngum gæðakröfum en hluti af gæðaeftirlitinu er að fara reglulega í útboð til að tryggja viðskiptavinum okkar bæði gæði og gott verð,“ segir Kristín til útskýringar.

Aðdáendur fyrri kartafla ættu þó ekki að örvænta. Gísli Jón Jónsson, upplýsingafulltrúi KFC, segir að nýr framleiðandi muni bjóða upp á franskar kartöflur sem svipi algjörlega til þeirra sem fyrir voru á KFC. Því ættu neytendur ekki að finna mun að sögn Gísla.

Kristín tekur í sama streng, viðskiptavinir ættu ekki finna fyrir þessum breytingum „nema þá kannski til hins betra.“ Hvorki Gísli né Kristín gáfu upp í samskiptum við Vísi hvenær búast má því að hinar nýju kartöflur rati í útibú KFC á Íslandi.


Tengdar fréttir

Keyptu á KFC fyrir 3 milljarða

Alls nam vörusala keðjunnar tæpum 3,1 milljarði króna í fyrra og jókst hún um sex prósent á milli ára.

Domino's með fimmtung markaðarins

Domino's er með stærsta markaðshlutdeild á íslenska skyndibitamarkaðnum, ef marka má tölur sem unnar eru upp úr neyslugögnum frá fjártæknifyrirtækinu Meniga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×