Lífið

Háðfuglar hæðast að neyðarástandi Trump

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Trevor Noah og Stephen Colbert hafa lagt það í vana sinn að gera grín að forseta Bandaríkjanna.
Trevor Noah og Stephen Colbert hafa lagt það í vana sinn að gera grín að forseta Bandaríkjanna. Getty/Scott Kowalchyck
Ákvörðun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að lýsa yfir neyðarástandi á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó svo fjármagna megi byggingu landamæramúrs, var tekin fyrir af helstu spjallþáttastjórnendum Bandaríkjanna í gærkvöldi.

Trevor Noah, sem stýrir The Daily Show á Comedy Central, benti á að ef lausnin við neyðarástandi sé að byggja múr sé líklega ekki um mikið neyðarástand að ræða. Jafn vel þó að menn samþykki að um neyðarástand sé að ræða væri mjög undarlegt að bregðast við því með að byggja múr.

„„Það er verið að ráðast á okkur, eigum við að kalla út skriðdrekana og hefja loftárásir? Nei, komdu með okkar bestu múrara. Eftir þrjú til fimm ár munu þeir sem ráðast inn til okkar sjá eftir því“,“ grínaðist Noah með ímynduðu samtali á milli Trump og yfirmanna hersins.

Þá gerði Seth Meyers, sem stýrir Late Night þættinum á NBC að eftir að forsetinn tilkynnti að lýst yrði yfir neyðarástandi hafi hann sést á omelettu-bar.

„Það er ekkert sem er jafn skýrt merki um að það sé ekki alvöru neyðarástand í gangi þegar hann fer á omelettu-bar. Enginn fer á omelettu-bar í neyðarástandi,“ sagði Meyers.

Sjá má brot af því besta úr þáttum gærdagsins hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Trump ekki skemmt eftir nýjasta atriði SNL

Svo virðist sem að Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi ekki skemmt sér yfir nýjasta opnunaratriði bandaríska grínþáttarins Saturday Night Live sem sýndur var á laugardaginn.

Sextán ríki kæra neyðarástand Trump

Sextán ríki Bandaríkjanna, með Kalíforníu í broddi fylkingar, hafa ákveðið að fara í mál við Donald Trump, forseta landsins, vegna ákvörðunar hans um að lýsa yfir neyðarástandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×