Lífið

Emmsjé Gauti og Jovana trúlofuð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lífið leikur við Emmsjé Gauta þessa dagana.
Lífið leikur við Emmsjé Gauta þessa dagana. Vísir/Eyþór
Rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, og kærasta hans, Jovana Schally, eru trúlofuð. Gauti greinir frá þessu á Instagram-reikningi sínum í dag.

„Í gær vaknaði ég kærasti en sofnaði sem unnusti. Hún sagði já!“ skrifaði Gauti í færslunni og lét myndir af rómantískri ferð skötuhjúanna fylgja með. Þá óskaði hann nýbakaðri unnustu sinni til hamingju með þrítugsafmælið, sem ætla má að hún hafi fagnað í ferðinni.

 

Gauti og Jovana hafa verið par í rúm tvö ár. Þau greindu frá því fyrr í mánuðinum að þau ættu von á dreng í sumar. Fyrir áttu þau bæði dóttur úr fyrri samböndum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×