Lífið

Lady Gaga og Christian Carino hætt saman

Sylvía Hall skrifar
Parið eftir Golden Globes.
Parið eftir Golden Globes. Vísir/Getty
Lady Gaga og unnusti hennar Christian Carino eru hætt saman eftir tveggja ára samband. Parið byrjaði að stinga saman nefjum í byrjun árs 2017 og trúlofaði sig skömmu síðar.

Sögusagnir um sambandsslit parsins fóru á flug eftir að leik- og söngkonan mætti ein á Grammy-verðlaunahátíðina í febrúar án bleika trúlofunarhringsins. Hringurinn var þá hvergi sjáanlegur þegar hún kom fram í Las Vegas í lok janúar.

Carino og Lady Gaga mættu þó saman á Golden Globes þar sem hún vann verðlaun fyrir besta lagið fyrir lagið „Shallow“ úr myndinni A Star Is Born og birti hann mynd af henni á Instagram-síðu sinni eftir verðlaunahátíðina.

Lady Gaga var áður trúlofuð Chicago Fire leikaranum Taylor Kinney en þau enduðu fimm ára samband sitt í júlí árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×