Íslenski boltinn

Viktor afgreiddi HK í leiknum um þriðja sætið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Viktor er hann skrifaði undir samninginn.
Viktor er hann skrifaði undir samninginn. mynd/ía
ÍA endar í þriðja sæti Fótbolta.net mótsins eftir að liðið vann 3-2 sigur á HK í leiknum um þriðja sætið í Kórnum í kvöld.

Emil Atlason kom HK yfir á nítjándu mínútu en Viktor Jónsson jafnaði metin ellefu mínútum síðar. Brynjar Jónasson kom HK yfir á 34. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Viktor var aftur á ferðinni á níundu mínútu síðari hálfleiks er hann jafnaði metin og hann fullkomnaði þrennuna stundarfjórðungi fyrir leikslok er hann skoraði sigurmarkið.

Funheitur Viktor og Skagamenn vona líklega að hann sé kominn í gang og verði eins heitur fyrir nýliðanna í Pepsi-deildinni næsta sumar en Viktor kom frá Þrótti í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×