Innlent

Minni þolinmæði gagnvart ökumönnum sem leggja illa

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ómar Smári bendir á að stundum sjái fólk bíla sem hefur verið lagt ólöglega og dragi samstundis þá ályktun að lögregla hafi ekkert aðhafst í málinu því bílarnir standi þar enn. Hann segir aftur á móti að oft og tíðum sé lögreglan þá og þegar búin að leggja á sekt og ákveðið ferli farið að stað.
Ómar Smári bendir á að stundum sjái fólk bíla sem hefur verið lagt ólöglega og dragi samstundis þá ályktun að lögregla hafi ekkert aðhafst í málinu því bílarnir standi þar enn. Hann segir aftur á móti að oft og tíðum sé lögreglan þá og þegar búin að leggja á sekt og ákveðið ferli farið að stað. Vísir/Egill
Samskipti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og árvökulla netverja á Twitter hafa vakið athygli og þá ekki síst á meðal þeirra sem stunda bíllausan lífsstíl.

Þegar netverjar bentu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á bíla sem var lagt ólöglega sagði fulltrúi lögreglunnar að þrátt fyrir að það mætti ekki leggja ólöglega „hljóti að vera ákveðið svigrúm meðan svona er“ og vísaði til hálkunnar og snævarins sem hefur einkennt veðrið undanfarna daga.

Fulltrúinn sagði að eigendur bíla væru sektaðir „hægri-vinstri“. Ökumönnum finnist of mikið sektað og gangandi finnist ekki nógu mikið gert.

Gísli Marteinn Baldursson dagskrárgerðarmaður var fremur ósáttur við svarið og sagði að lögreglan mætti ekki reyna að fara einhvern meðalveg þegar kæmi að lögum. „Munurinn er sá að annar hópurinn er að óska eftir því að það sé ekki gert. Maður skyldi ætla að það vefðist ekki fyrir ykkur á hvort hópinn ætti að hlusta,“ skrifar Gísli.

Það hefur færst í vöxt að almennir borgarar sendi inn ábendingar líkt og sést á myndinni til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Umferðarlögin í gildi allan sólahringinn og árið um kring

Inntur eftir viðbrögðum segir Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn að umferðarlögin séu í gildi allan sólarhringinn og allt árið um kring. Þó geti komið upp óvenjulegar aðstæður og tímabundið ástand líkt og verið hafa undanfarna daga.



Hann segir að lögreglan sjái ávallt til þess að ökutæki sé fjarlægt ef það er hættulegt gangandi vegfarendum, því lagt nálægt gatnamótum eða í veg fyrir gangandi.

Ómar Smári segir að lögregla hafi fyrst samband við eiganda bílsins og fari fram á að hann fjarlægi bílinn. Ef ekki náist í eiganda, eða ef hann verður af einhverjum ástæðum ekki við kröfum lögreglunnar, þurfi að láta draga hann í burtu sem hafi mikinn kostnað í för með sér fyrir eigandann.

Ómar Smári bendir á að stundum sjái fólk bíla sem hefur verið lagt ólöglega og dragi samstundis þá ályktun að lögregla hafi ekkert aðhafst í málinu því bílarnir standi þar enn. Hann segir aftur á móti að oft og tíðum sé lögreglan þá og þegar búin að leggja á sekt og ákveðið ferli farið að stað.

 

Fleiri senda inn ábendingar til lögreglu

Ómar Smári segir að í dag sé minni þolinmæði fyrir stöðubrotum ökumanna og bætir við að það hafi færst í vöxt að fólk sendi inn ábendingar til lögreglu. Hann segir að sú þróun sé mjög jákvæð því fólk sé mjög vakandi fyrir þeim hættum sem geta skapast af bílum sem sé lagt ólöglega.


Tengdar fréttir

Notaði drenginn sem sköfu

Mikið fannfergi er í Bandaríkjunum um þessar mundir og er frostið að mælast mikið, allt upp í 50 gráðu frost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×