Körfubolti

Sextán stig frá Degi gegn toppliðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagur Kár Jónsson.
Dagur Kár Jónsson. mynd/flyers
Dagur Kár Jónsson átti flottan leik fyrir Flyers Weels sem vann 93-89 sigur á toppliðinu Kapfenberg Bulls í austurrísku úrvalsdeildinni í kvöld.

Dagur Kár skoraði sextán stig og gaf þrjár stoðsendingar á þeim tæplega 23 mínútum sem hann lék í kvöld. Flyers er með sigrinum komið upp í sjöunda sæti deildarinnar og fór upp um þrjú sæti.

Nanterre er áfram í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar eftir fimm stiga tap, 82-77, gegn Mónakó í kvöld. Haukur Helgi Pálsson var ekki í leikmannahóp Nanterre.

Mónakó leiddi í raun allan leikinn og var tíu stigum yfir í hálfleik 41-31. Þrátt fyrir áhlaup anterre héldu leikmenn Mónakó út og fóru með stigin tvö heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×