Innlent

Tveggja bíla árekstur á Háaleitisbraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þessi Audi-bifreið fór ekki vel út úr árekstrinum.
Þessi Audi-bifreið fór ekki vel út úr árekstrinum. Vísir/Egill
Árekstur varð á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar á tíunda tímanum í morgun. Tveir fólksbílar skullu saman. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði ekki heyrt af árekstrinum þegar haft var samband. Það bendir til þess að meiðsli hafi verið minniháttar eða engin.

Skyggni á höfuðborgarsvæðinu er afar lítið það sem af er degi.

Töluverð umferð var á þeim tíma sem áreksturinn varð.Vísir/Egill



Fleiri fréttir

Sjá meira


×