Bílar

Stýrishjól óhreinni en klósettsetur

Finnur Thorlacius skrifar
Innréttingar bíla eru með allra sóðalegustu stöðum.
Innréttingar bíla eru með allra sóðalegustu stöðum.
Samkvæmt rannsókn sem gerð var af CarRentals.com í Bandaríkjunum eru stýrishjól bíla að jafnaði fjórum sinnum skítugri en klósettsetur. Í raun eru innréttingar bíla með allra sóðalegustu stöðum sem finna má. Í könnun CarRentals.com, þar sem spurðir voru 1.000 ökumenn, kom fram að 32% þeirra þrifu aldrei innréttingar bíla sinna, eða í mesta lagi einu sinni á ári.

Í rannsóknum annarrar bandarískrar stofnunar, National Center for Biotechnology Information, er niðurstaðan fremur sjokkerandi er kemur að innréttingum bíla, en þær eru svo óhreinar að klósettsetur eru í flestum tilvikum hreinni og stýrishjól bíla eru verst og á þeim eru að jafnaði fjórum sinnum meiri óhreinindi en á klósettsetum

Þetta ættu bíleigendur að hafa í huga í umgengni við bíla sína og ef til vill þrífa þá örlítið oftar, ekki bara að utan. Í rannsókninni mældist bakteríufjöldi á hvern fersentimetra á stýrishjólum 629 CFU en til samanburðar mælist hann 100 CFU á símaskjáum, 313 CFU á lyftutökkum og 172 CFU á klósettsetum. Ein sláandi staðreyndin enn sem þessi rannsókn leiddi í ljós er að það finnast að jafnaði 700 mismunandi bakteríutegundir í innréttingum bíla og sumar þeirra valda matareitrun, húðsjúkdómum og ýmiss konar sýkingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×