Handbolti

Kjóstu besta leikmann í Olís-deild kvenna í janúar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hver var nú best í janúar?
Hver var nú best í janúar? vísir
Umferðir 8-14 eða annar þriðjungur Olís-deildar kvenna var gerður upp í sérstökum uppgjörsþætti Seinni bylgjunnar fyrir helgi en þar voru opinberaðir þeir leikmenn sem koma til greina sem leikmenn janúarmánaðar.

Það eru þær Olgica Andrijasevic, markvörður KA/Þórs, Íris Ásta Pétursdóttir, hægri hornamaður Vals, Ragnheiður Júlíusdóttir, vinstri skytta Íslands- og bikarmeistara Fram, og Maria Ines de Silva Pereira, stórskytta Haukanna.

Allar spiluðu virkilega vel í janúar en Olgica átti stóran þátt í frábærri byrjun nýliðanna fyrir norðan á nýju ári og Ragnheiður er nú að spila eins og hún er upp á sitt besta eftir að hafa verið yfir pari fyrir jól. Maria Pereira er sömuleiðis að sýna sitt rétta andlit og reynsluboltinn í horninu hjá Val hefur verið frábær.

Hér að neðan má taka þátt í kosningunni um besta leikmann janúar í Olís-deild kvenna og sömuleiðis má sjá uppgjörsþáttinn í heild sinni. Sigurvegarinn fær vinninga frá Olís og Fiskikónginum.

 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×