Innlent

Ummæli Páls Óskars um gyðinga og Helförina vekja undrun og furðu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Margir eru ósáttir við ummæli hins geðþekka tónlistarmanns Páls Óskars.
Margir eru ósáttir við ummæli hins geðþekka tónlistarmanns Páls Óskars. Fréttablaðið/Anton Brink
Ummæli tónlistarmannsins Páls Óskars Hjálmtýssonar um að gyðingar hafi ekki lært neitt af Helförinni og að þeir hafi saumað sig „í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma“ hafa vakið bæðu undrun og furðu á samfélagsmiðlum. Ummælin eru harðlega gagnrýnd og Páll Óskar sakaður um gyðingahatur og kynþáttafordóma.

Ummælin lét Páll Óskar falla í Lestinni á Rás 1 í gær þar sem umræðuefnið var hvort rétt væri að Ísland myndi sniðganga Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpstöðva, sem haldin verður í Tel Aviv í Ísrael í maí. Vel á þriðja tug þúsunda undirskrifta hafa safnast til stuðnings þess að RÚV afþakki þátttöku í keppninni, vegna framgöngu Ísrals í átökunum við Palestínu. Ísland mun engu að síður taka þátt.

Sjá einnig: Páll Óskar og dagskrárstjóri RÚV tókust á um Eurovision

Umræðan um sniðgöngu hefur þó ekki verið jafn mikil annars staðar í Evrópu og í Lestinni sagði Páll Óskar ástæðuna vera þá að gyðingar séu víða um Evrópu og umræðunni yrði ekki vel tekið.

„Ástæðan fyrir því að restin af Evrópu þegir þunnu hljóði er sú að gyðingar eru búnir að sauma sig inn í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma. Það er alls ekki hip og kúl að vera „pro-Palestína“ í Bretlandi,“ sagði Páll Óskar.

Gyðingar hefðu að hans mati ekki lært af sögunni.

„Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af Helförinni. Í staðinn umbreyttust þeir í nákvæma afsteypu af sínum ógeðslegasta óvini.“

Gísli Freyr Valdórsson er meðal þeirra sem leggja orð í belg.Fréttablaðið/Ernir

„Hvað áttu gyðingar að „læra“?“

Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð, ekki síst sú síðari og hefur Páll Óskar meðal annars verið gagnrýndur fyrir að setja alla gyðinga undir sama hatt, vegna framferðis Ísraela í átökunum við Palestínu, og bent á að jafn vel þótt að mönnum blöski framganga yfirvalda í Ísrael þýði það ekki að allir gyðingar styðji Ísrael gegn Palestínu né kvitti upp á aðferðir yfirvalda og hersins í átökunum.

„Hjálpar nákvæmlega ekkert að tengja svona svæsinn antísemítisma við harða afstöðu gegn viðbjóðnum sem Ísraelsríki stendur fyrir. Gagnrýninni snúið upp í algjöra andhverfu sem þjónar einmitt sjúkri orðræðu ísraelskra yfirvalda,“ skrifar Iris Edda Nowenstein á Twitter.

Þá velta ýmsir fyrir sér hvað nákvæmlega það hafi verið sem gyðingar hafi átt að læra af Helförinni þar sem um sex milljónir gyðinga voru myrtir á kerfisbundinn hátt af Nasistum í Þýskalandi og víðar í Seinni heimsstyrjöldinni.

„Ég hef alltaf verið mikill áðdáandi Páls Óskars sem tónlistarmanns. Ekki vissi ég þó að hann væri fullur af gyðingahatri. „Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af Helförinni," segir hann m.a. í þessu undarlega viðtali. Hvað áttu gyðingar að „læra“?“ skrifar Gísli Freyr Valdórsson á Twitter.

Segir ummælin skaðlegri en 400 viðtöl við þjóðernissina í Paradísarheimt

Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl skrifar einnig um ummæli Páls Óskars á Facebook. Þar segir hann að það sé til marks um líflegt og réttlátt samfélag að umræða fari fram um hvort rétt sé að sniðganga Eurovision, að fara í svokallað „menningarlegt viðskiptabann“ til þess að mótmæla framferði Ísraels í garð Palestínu.

Umræðan sé hins vegar á villigötum þegar alhæft sé um gyðinga og segir Eiríkur Örn að orð Páls Óskars geti reynst mjög skaðleg.

„Orð Páls Óskars sem vitnað er til hér að ofan eru miklu meira normalíserandi fyrir gyðingahatur og rasisma í Evrópu en 400 white trash Gísla á Uppsölum fríksjó viðtöl í „mannlífsþætti“ Jóns Ársæls, sem allir ofönduðu yfir í gær,“ skrifar Eiríkur Örn og vitnar þar í umdeilt viðtal Jóns Ársæls Þórðarsonar við þjóðernissinnan Sigríði Bryndísi Baldvinsdóttur.

Eiríkur Örn Norðdahl leggur einnig orð í belg.Fréttablaðið/Hari
„Gyðingar eru ekki nasistar og helförin var ekki kennslustund sem Gyðingar sváfu af sér. Það er tæpur mannsaldur frá því að arískir evrópumenn, einsog við Palli, gerðu raunverulega og skipulagða tilraun til þess að útrýma Gyðingum í til þess gerðum verksmiðjum. Og það tókst, að mjög miklu leyti,“ skrifar Eiríkur Örn.

Hægt sé að berjast gegn framferði Ísraels á hernumdum svæðum Palestínumanna án þess að alhæfa um gyðinga.

„Það á að vera hægt að debatera menningarleg viðskiptabönn á Ísrael og berjast gegn mannréttindabrotum ógnarstjórnarinnar á hernumdu svæðunum án þess taka upp 80 ára gamlar klisjur, án þess að detta í þessar gildrur, án þess að kenna „Gyðingum“ um að hafa ekkert lært af helförinni. Það er nefnilega ekki tragedía að „Gyðingar“ hafi ekki lært af henni heldur að við hin skulum ekki skammast okkar, að við skulum ekki hafa lært,“ skrifar Eiríkur Örn.



Sem fyrr segir hafa ummælin vakið nokkurra undrun og furð á samfélagsmiðlum en hér að neðan má sjá brot af umræðunni um ummælin.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×