Viðskipti erlent

Bill Gross hættur störfum

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Bill Gross, betur þekktur sem kóngur skuldabréfanna.
Bill Gross, betur þekktur sem kóngur skuldabréfanna. Nordicphotos/Getty
Bill Gross, sem var eitt sinn þekktur sem kóngur skuldabréfanna, hefur ákveðið að láta af störfum hjá eigna­stýringarfyrirtækinu Janus Henderson og einbeita sér þess í stað að því að stýra eigin eignum og góðgerðastofnun.

Fimm ár eru síðan Gross stýrði stærsta skuldabréfasjóði heims hjá Pimco, eignastýringarfyrirtæki sem hann stofnaði árið 1971, en eignir sjóðsins námu tæplega 300 milljörðum dala þegar mest var. Gross hætti hins vegar í skyndi hjá Pimco árið 2014, vegna ósættis við samstarfsfélaga og gekk þá til liðs við Janus Henderson.

Eignir í stýringu hjá sjóði Gross hafa dregist verulega saman undanfarin ár og fóru nýverið undir einn milljarð dala. Ávöxtun sjóðsins var neikvæð um 3,9 prósent í fyrra borið saman við 1,2 prósenta neikvæða ávöxtun hjá sambærilegum sjóðum.

„Ég hef þekkt Bill í 23 ár. Bill er einn af bestu fjárfestum allra tíma og það hefur verið mér mikill heiður að starfa við hlið hans,“ sagði Dick Weil, forstjóri Janus Henderson.

Auðkýfingurinn George Soros var á meðal þeirra sem lögðu traust á Gross þegar hann skipti um vinnustað fyrir fimm árum. Þegar síga tók á ógæfuhliðina í rekstri sjóðsins árið 2015 dró Soros hálfan milljarð dala úr sjóði Gross.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×