Körfubolti

Körfuboltakvöld: Kjúklingurinn sem sló í gegn hjá Keflavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Andri Þór á framtíðina fyrir sér.
Andri Þór á framtíðina fyrir sér.
Ungur leikmaður í liði Keflavíkur, Andri Þór Tryggvason, vakti verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Keflavík gegn Blikum.

„Mikilvægt fyrir svona gutta að koma inn í svona leik og sýna hvað þeir geta. Það er engin pressa,“ segir Kristinn Friðriksson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, en Andri var stigahæstur í liði Keflavíkur í leiknum.

„Það eru gæjar sem hafa verið lengi í þessu Keflavíkurliði sem hafa aldrei verið stigahæstir í leik. Hann getur rifið kjaft á æfingu,“ bætti Teitur Örlygsson við.

Sjá má tilþrif guttans hér að neðan.



Klippa: Körfuboltakvöld um Andra Þór í Keflavík

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×