Íslenski boltinn

Guðni og Geir mættust í kappræðum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðni og Geir hafa háð snarpa kosningabaráttu síðustu misseri. Þeir voru í sjónvarpssal í kvöld.
Guðni og Geir hafa háð snarpa kosningabaráttu síðustu misseri. Þeir voru í sjónvarpssal í kvöld. vísir/vilhelm
Guðni Bergsson og Geir Þorsteinsson bítast um formannstólinn hjá KSÍ og þeir sátu fyrir svörum í beinni á Vísi í kvöld.

Geir sat í tíu ár sem formaður KSÍ eftir að hafa verið framkvæmdastjóri sambandsins í tíu ár þar á undan.

Hann dró sig aftur á móti úr formannsslagnum fyrir tveimur árum síðan er Guðni var kjörinn formaður. Guðni hafði þá betur gegn Birni Einarssyni.

Geir er mættur aftur og vill formannsstólinn á nýjan leik en umræðurnar í kvöld voru nokkuð fjörugar og koma á Vísi í heild sinni á föstudagsmorgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×