Handbolti

Fékk einn leik að auki í bann eftir annan fund aganefndar á einum sólarhring

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Birgir Ingvarsson.
Jóhann Birgir Ingvarsson. Vísir/Bára
FH-ingurinn Jóhann Birgir Ingvarsson er á leiðinni í tveggja leikja bann en aganefnd HSÍ þurfti að taka fyrir mál hans á tveimur fundum á tveimur dögum.

Jóhann Birgir Ingvarsson hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Gróttu og FH á sunnudagskvöldið. Jóhann fór þá í andlitið á Gróttumanninum Ásmundi Atlasyni. Þetta var fyrsta rauða spjaldið hjá Jóhanni í Olís deildinni í vetur.

Aganefnd HSÍ dæmdi Jóhann Birgi í bann á fundi sínum á þriðjudag en málinu var síðan frestað um sólarhring með hliðsjón af þriðju grein reglugerðar HSÍ um agamál.

Í gær var mál Jóhanns aftur tekið fyrir á fundi Aganefndar HSÍ. Aganefndin tók þá meðal annars fyrir greinargerð barst frá FH vegna málsins og myndbandsupptöku af atvikinu.

„Aganefnd hefur skoðað gögn málsins, þ.m.t. myndbandsupptöku af atvikinu og telur brotið réttilega heimfært af dómurum leiksins sem brot gegn reglu 8.6. Niðurstaða aganefndar er eins leiks bann til viðbótar við það bann sem hann hlaut með úrskurði aganefndar, dags. 5. febrúar 2019, eða alls tveggja leikja bann vegna atviksins. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. reglugerðar HSÍ um agamál,“ segir í niðurstöðunni sem birt var á heimasíðu HSÍ. Úrskurðinn kváðu upp þeir Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.

Jóhann Birgir Ingvarsson missir því af næstu tveimur leikjum FH sem eru deildarleikur á móti Stjörnunni og leikur í átta liða úrslit bikarkeppninnar á móti Aftureldingu.

Ekki góðar fréttir fyrir FH-liðið sem lék síðasta leik án fjögurra öflugra leikmanna. Einar Rafn Eiðsson, Arnar Freyr Ársælsson, Jóhann Karl Reynisson og Birgir Már Birgisson voru þá allir meiddir og upp í stúku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×