Íslenski boltinn

Sjáðu kappræður Geirs og Guðna í heild sinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Geir Þorsteinsson og Guðni Bergsson.
Geir Þorsteinsson og Guðni Bergsson. vísir/vilhelm

Formannsframbjóðendur KSÍ, Geir Þorsteinsson og Guðni Bergsson, sátu fyrir svörum á Stöð 2 Sport og Vísi á miðvikudag. Nú má sjá þær kappræður í heild sinni á Vísi.

Farið var um víðan völl í kappræðunum en þátturinn er tæpur klukkutími að lengd. Kosið verður um formann KSÍ á ársþingi sambandsins á morgun.

Guðni hefur setið sem formaður síðustu tvö ár en Geir var formaður í tíu ár þar á undan.

Kappræðurnar má sjá í heild sinni hér að neðan.

Klippa: Kappræður Geirs og Guðna

Tengdar fréttir

Könnun íþróttadeildar: Guðni er að valta yfir Geir

Íþróttadeild Stöðvar 2 og Vísis stóð fyrir könnun á meðal aðildarfélaga KSÍ um hvaða formannsframbjóðanda félögin ætluðu að kjósa. Sú könnun kom afar vel út fyrir sitjandi formann, Guðna Bergsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×