Innlent

Sérsveitarmenn björguðu manninum af brúnni

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Maðurinn vakti athygli á stöðu sinni með þessum hætti í dag. Honum var giftusamlega bjargað af brúnni
Maðurinn vakti athygli á stöðu sinni með þessum hætti í dag. Honum var giftusamlega bjargað af brúnni Vísir/JóhannK
Íranskur hælisleitandi reyndi í dag að skaða sig frammi fyrir fjölda vegfarenda á Miklubraut. Sérveit Ríkislögreglustjóra tókst giftusamlega að bjarga manninum og koma honum undir læknishendur.

Lögreglumenn, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn auk sérsveitarmanna sýndu fumlaus og öguð viðbrögð í erfiðum aðstæðum en atvikið átti sér stað á göngubrúnni yfir Miklubraut við Kringluna um miðjan dag. En íranskur hælisleitandi, sem fréttastofan hefur áður fjallað um, hótaði að skaða sig. Mikill viðbúnaður var vegna málsins og var umferð um Miklubraut var stöðvuð í báðar áttir og fjöldi gangandi vegfarenda, bæði barna og fullorðinna fylgdust með þegar maðurinn reyndi að vekja athygli á stöðu sinni með þessum hætti. 

Lögregla, slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn auk sérsveitar Ríkislögreglustjóra hlúðu að manninum og komu honum undir læknishendur.Vísir/JóhannK

Ný hættur í hungurverkfalli

Rauði krossinn hefur haft miklar áhyggjur af manninum en fyrir um tveimur vikum fjallaði fréttastofan um málefni hans þegar hann var á tólfta degi hungurverkfalls. Maðurinn er bæði andlega og líkamlega veikur og hóf hungurverkfallið, að hans sögn, eftir hafa ekki fengið nauðsynlega læknisaðstoð, en hann hefur verið sár þjáður af gyllinæð og þá segist hann glíma við andleg veikindi sem hann fái ekki nauðsynleg lyf við.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 á sínum tíma að geðheilbrigðismál í hæliskerfinu hafi aldrei verið þyngri en áfallateymi Rauða krossins var kallað út þrisvar sinnum oftar á síðastliðnu ári miðað við árið á undan vegna mála sambærilegra og íranski flóttamaðurinn glímir við.

Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum frá því fyrir tveimur vikum var maðurinn metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu þar sem hann er bæði andlega og líkamlega veikur en vegna þess að veikindi hans eru ekki lífshættuleg falli þau utan þeirrar heilbrigðisþjónustu sem hælisleitendur eigi rétt á. Því þurfi að fara fram sérstakt mat á mikilvægi þjónustunnar sem Útlendingastofnun lætur framkvæma en það ferli geti tekið langan tíma. 

Rauði krossinn baðst undan viðtali vegna málsins í dag og sagði málefni mannsins í höndum lögreglu. Unnið sé að því að veita honum viðeigandi aðstoð.


Tengdar fréttir

Maður hékk á göngubrúnni yfir Miklubraut

Sérsveit lögreglu og slökkvilið var kölluð út að göngubrúnni yfir Miklubraut við Kringluna á fjórða tímanum í dag þar sem tilkynnt hafði verið um karlmann hangandi á göngubrúnni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×