Innlent

Ennþá vanhæf í máli Geirfinns og Guðmundar

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. Vísir/Pjetur
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari er að eigin mati vanhæf til að taka afstöðu til þess hvort hefja á rannsókn að nýju á afdrifum Guðmundar og Geirfinns Einarssona. Hún tilkynnti dómsmálaráðherra um vanhæfi sitt með bréfi 12. desember síðastliðinn.

Eins og fram kom við upphaf endurupptökumálsins er Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari tengd Erni Höskuldssyni fjölskylduböndum en hann stýrði rannsókn á áttunda áratugnum gegn sexmenningunum sem sakfelld voru fyrir aðild að mannshvörfunum tveimur.

Dómsmálaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort einhver annar verði settur ríkissaksóknari til að taka ákvörðun um nýja rannsókn en samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu hefur erindið verið móttekið og er til meðferðar.

Þegar Davíð Þór Björgvinsson, settur saksóknari í endurupptökumálinu, skilaði vinnu sinni af sér til embættis ríkissaksóknara eftir að sýknudómur féll í Hæstarétti síðastliðið haust vakti hann sérstaka athygli á ábendingum um afdrif mannana tveggja sem komið hafa fram á undanförnum árum og vísað var til hans. Þar á meðal var ábending um afdrif Guðmundar sem leiddi til handtöku tveggja manna árið 2015. Einnig voru teknar skýrslur af tveimur vitnum árið 2016 vegna meintra atvika í Vestmannaeyjum dagana í kringum hvarf Geirfinns árið 1974.

Fréttablaðið greindi frá því í haust að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lægi undir feldi vegna málsins og hefði hug á að hefja rannsókn að nýju en biði formlegrar afstöðu ríkissaksóknara. Það er hins vegar einungis Guðmundarmálið sem er á forræði þess embættis en Guðmundur hvarf í Hafnarfirði í janúar 1974.

Hvarf Geirfinns heyrir hins vegar undir lögregluna á Suðurnesjum og það var lögreglan í Keflavík sem rannsakaði málið á sínum tíma.

Þar var málinu lokað um mitt ár 1975 sem óupplýstu mannshvarfi, áður en lögreglan í Reykjavík kallaði eftir gögnum þaðan í janúar 1976, þegar fjöldi fólks var í gæsluvarðhaldi í Síðumúla vegna Guðmundarmáls.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×