Handbolti

Reyndu sig á móti vélmenni dulbúnu sem Björgvin Páll

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásbjörn, Embla, Lovísa og Ýmir klár í slaginn með vélmenna Björgvin Pál á milli sín.
Ásbjörn, Embla, Lovísa og Ýmir klár í slaginn með vélmenna Björgvin Pál á milli sín. Mynd/UT messan
FH-ingarnir Ásbjörn Friðriksson og Embla Jónsdóttir kepptu við Valsarana Lovísu Thompson og Ými Örn Gíslason í skemmtilegri keppni á móti vélmennamarkverði í líki Björgvins Páls landsmarkvarðar í handbolta.

Vítaskotkeppnin var haldin á vegum Origo í Hörpu í tengslum við UT messuna sem er að hefjast þar.

Björgvin Páll Gústavsson varði hvert vítaskotið á fætur öðru á HM í handbolta í síðasta mánuði en þetta vélmenni var líka ekkert lamb að leiks sér við.

Það reyndist nefnilega þrautinni þyngri að skora hjá vélmenna Björgvin Páli sem varði langflesta bolta frá handboltahetjunum.

Þó náðu hvort lið að skora tvívegis hjá vélmenninu og leikar fóru því 2-2. Ásbjörn, Embla, Lovísa og Ýmir reyndu alls kyns skot en mjög erfiðlega gekk að finna glufur á markverðinum sem varði uppi og niðri í hornunum.

„Vesenið er bara að hann ver allt," sagði Ýmir stórskytta eftir að vélmenna Björgvin Páll hafði varið enn eitt skotið.

„Þetta var erfitt en skemmtilegt. Það er eins gott að maður er ekki að mæta þessum markverði í hverjum leik," sagði Ásbjörn.

Almenningi verður boðið upp á að skjóta á vélmennamarkvörðinn á morgun laugardag en þá verður UT messan opin öllum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig fólki mun ganga að skjóta á þennan öfluga markvörð með gervigreindina.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×