Íslenski boltinn

„Fólk má lýsa yfir stuðningi við hvern sem er en það er ekki smekklegt að draga aðra niður í svaðið“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Rúnar Halldórsson, formaður FH, verður einn þeirra sem sitja þingið á morgun.
Jón Rúnar Halldórsson, formaður FH, verður einn þeirra sem sitja þingið á morgun. vísir/stefán
Formannskosningar KSÍ fara fram á morgun en um formannsstólinn berjast núverandi formaður, Guðni Bergsson, og fyrrum formaður og heiðursformaður, Geir Þorsteinsson.

Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, hefur setið ófá þingin og hann mun vera á þinginu á morgun er þeir Guðni og Geir berjast um að verða formaður stærsta íþróttasambands Íslands. Morgunblaðið sló á þráðinn til Jóns til þess að ræða kjörið.

„Ég veit að ég mæli fyrir munn margra forráðamanna í aðildarfélögum KSÍ þegar ég segi að í aðdraganda formannskjörsins á ársþingi sambandsins á morgun, og umfjöllunar fjölmiðla um kosningabaráttuna undanfarna daga, hafi hin svokölluðu stóru mál fallið í skuggann fyrir því sem skiptir minna máli fyrir félögin sjálf,“ sagði Jón Rúnar í samtali við mbl.is.

Jón Rúnar nefndi þar á meðal sér til stuðnings viðtal Stöðvar 2 við Aleksander Ceferin, formann UEFA, sem birtist á Vísi á dögunum en þar ræddi Ceferin um dásemd sína á Guðna Bergssyni.

Einnig nefnir Jón Rúnar að nokkrir einstaklingar hafi stigið fram og haft áhrif á umræðuna en þessir sömu einstaklingar hafi lítið sem ekkert að gera með rekstur félaganna.

„Þar má nefna landsliðsfólk, fyrrverandi dómara og menn sem hafa verið í stuði allt sitt líf! Að sjálfsögðu má fólk lýsa yfir stuðningi við hvern sem það vill en það er ekki smekklegt að draga aðra niður í svaðið um leið, og eins langt frá íþróttamannslegri fram­komu og mögulegt er.“

„Í raun má segja að tilgangurinn hafi helgað meðalið. Það verða að vera málefnalegu rökin sem ráða för,“ bætti Jón Rúnar við og segir að orðin geri lítið úr verkum Guðrúnar Ingu Sívertsen:

„Mér finnst til dæmis yfirlýsingar landsliðskvennanna ekki gera neitt annað en að gera lítið úr verkum Guðrúnar Ingu Sívertsen, fráfarandi varaformanns KSÍ, sem hefur vaðið eld og brennistein fyrir þessar frábæru knattspyrnukonur, með fullri virðingu fyrir öðrum innan stjórnar sambandsins.“


Tengdar fréttir

Sjáðu kappræður Geirs og Guðna í heild sinni

Formannsframbjóðendur KSÍ, Geir Þorsteinsson og Guðni Bergsson, sátu fyrir svörum á Stöð 2 Sport og Vísi á miðvikudag. Nú má sjá þær kappræður í heild sinni á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×